Í morgun komu í heimsókn þau Gils Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Árnessýslu, Halldóra S. Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, stéttarfélags og Þór Hreinsson, þjónustustjóri stéttarfélaga á Suðurlandi og afhentu skólanum, fyrir hönd Bárunnar, Verslunarmannafélagsins og Félags iðn- og tæknigreina, að gjöf sögu Alþýðusambands Íslands í tveim bindum. Fyrra bindið ber heitið Í samtök, en það síðara, Til velferðar. Sumariði Ísleifsson, sagnfræðingur, skráði söguna.
Bækurnar verða varðveittar á bókasafni skólans.
-pms
Suttmyndin „Die böse Nonne“ varð á dögunum í öðru sæti í stuttmyndasamkeppni á vegum Félags þýzkukennara (FÞ). Höfundar myndarinnar eru Elín Guðrún Þorleifsdóttir (frá Vogum á Vatnsleysuströnd), Guðrún Ósk Friðriksdóttir (frá Hveragerði), Hafdís Ellertsdóttir (frá Flúðum), Sigurlaug Margrét Hafþórsdóttir (frá Ísafirði) og Sóley Tómasdóttir (frá Staðartungu í Hörgárdal). Þær eru allar í 3. bekk félagsfræðibrautar og var stuttmyndagerðin hluti af námi þeirra í þýsku 303. Innilega til hamingju með árangurinn!
Þann 12. apríl næstkomandi verða liðin 60 ár frá stofnun Menntaskólans að Laugarvatni. Við teljum að full ástæða til að fagna á þeim tímamótum með viðeigandi hætti.
Það eru nemendur skólans á hverjum tíma sem hafa mótað þann brag sem hefur einkennt skólann gegnum áratugina og því mun afmælisdagurinn taka mið af þeim.
Síða 8 af 99