Einhvern veginn er það nú svo, að ef einhverjum í þessum skóla dettur í huga að gera eitthvað sem ekki er venjulegt og sem einhverjum öðrum finnst nokkuð skemmtilegt, þá er það óðar orðið að hefð. Þannig var þetta með bekkjarbúninga annars bekkjar.
Í dag átti sér stað árlegur vatnsslagur að vori, undir öruggri stjórn og vökulu auga Pálma Hilmarssonar, húsbónda. Tilgangur þessa ats er fyrst og fremst að koma kroppnum á hreyfingu og brosi á andlitin á prófatíma. Allt fór hið besta fram sem fyrr, en myndir fjalla betur um svona nokkuð en orðin geta.
- pms
Í dag er síðasti kennsludagur skólaársins og nemendur 4. bekkjar fagna þeim áfanga sérstaklega. Í morgun áttu sér stað hefðbundin morgunverk, og eftir hádegið taka við hefðbundin síðdegisverk, sem fela í sér, meðal annars, sundlaugarferð að Stöng, heimsóknir til starfsfólks og loks hátíðarkvöldverð.
Á mánudag er það síðan prófatíminn með allri sinni alvöru. Brautskráning og skólaslit verða laugardaginn 25. maí.
- pms
Síða 2 af 99