Payday loans

Enska

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

ENS 103

Í beinu framhaldi af námi í grunnskóla eru undirstöðuatriði enskrar málfræði, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið, rifjuð upp í efnislegu samhengi við aðra þætti námsins. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Hraðlesið efni valið við hæfi nemenda. Markvissar hlustunaræfingar. Enskt talmál æft m.a. í tengslum við lestrar- og hlustunarefni. Skriflegi þátturinn þjálfaður með fjölbreyttum æfingum í tengslum við þá efnisflokka sem unnið er með. Nemendum leiðbeint í notkun orðabóka.

 

ENS 203

Gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðra vinnubragða en í ENS 103. Lestur almennra og sérhæfðra texta sem ekki eru einfaldaðir. Unnið með orðabók þar sem það á við. Aukin áhersla á að nemendur tjái sig frjálst og óbundið. Markvissar hlustunaræfingar. Áhersla lögð á að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga.

  

ENS 303

Áhersla á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og geti áttað sig á dýpri merkingu þeirra (geti „lesið á milli línanna“). Lesin eru bókmenntaverk og túlkuð út frá víðara samhengi en áður með tilliti til sögu og bókmenntalegra skírskotana. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og geti rökstutt skoðanir sínar. Nemendur fá þjálfun í að vinna að viðameiri verkefnum þar sem efnis er leitað á bókasöfnum, á Netinu og í margmiðlunarefni. Markviss kynning á menningu enskumælandi landa. Áhersla er lögð á alhliða færni í málinu.

 

ENS 403

Áhersla lögð á fjölbreytilega texta, t.d. greinar úr fagbókum og -tímaritum og rannsóknarskýrslur. Lesin eru bókmenntaverk sem fjalla um félagsleg málefni. Sérstök áhersla á fagorðaforða og kynningu á skýrslugerð í félagsvísindum. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti, geti rökstutt skoðanir sínar og tileinkað sér fagorðaforða. Áhersla lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga á bókasöfnum, Neti og í margmiðlunarefni.

 

ENS 503

Áfram skal byggja á því sem gert hefur verið í fyrri áföngum. Sérstök áhersla er lögð á ritun. Auk þess verður unnið með ensku sem alþjóðamál og algengustu afbrigði

málsins eftir búsetu, menntun og stétt. Lestextar, hlustunar- og myndbandsefni ættu að endurspegla með sem bestum hætti menningu og mannlíf ólíkra málsvæða og sýna fjölbreytileika hinnar ensku tungu. Hér má t.d. hugsa sér smásögur, blaðagreinar, ljóð, tónlist, kvikmyndir o.fl. frá ýmsum enskumælandi löndum. Mikilvægt er að tryggja virkni nemandans í kennslustundum.

 

ENS 603

Mikilvægt er að vinna áfram með þá færni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum og leggja áherslu á alla færniþætti í náminu. Áfram er unnið að því að gera málnotkun nemenda markvissari og fágaðri. Í þessum áfanga mætti leggja áherslu á enska málsögu og uppbyggingu og þróun málsins.  Auk þess ágrip af enskri bókmenntasögu með það fyrir augum að nemendur geti tekist á við lestur texta frá ólíkum tímabilum.