Payday loans

Ávarp skólameistara

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst
Menntaskólinn að Laugarvatni er bekkjaskóli og búa langflestir nemendur hans á heimavist skólans. Náin dagleg samskipti milli nemenda eru mikil og þau eru meðal margra annarra þátta sem gera nám í heimavistarskóla í sveit svo eftirsóknarvert.

Heimavist er heimili. Tillitsemi, umburðarlyndi og jákvæðni eru mannlegir eiginleikar sem njóta sín og þjálfast í heimavistarskóla. Enginn hverfur í fjöldann. Allir skipta máli. Hver og einn finnur til sín, finnur að hann er hluti af stórri fjölskyldu þar sem allir hafa sama rétt.
Nám í heimavistarskóla einkennist oft af mikilli samhjálp nemenda. Allir stefna að sama marki; að standa sig og þroskast í námi og lífi.  Líf í heimavistarskóla er gott líf.
Félagslíf er öflugt og fjölbreytt og þátttaka hvers og eins skiptir máli. Það lærist afar margt utan hefðbundins náms í Menntaskólanum að Laugarvatni.
Skólinn er þriðji elsti menntaskóli landsins, stofnaður 12. apríl 1953. Fyrir voru Menntaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn á Akureyri. Nemendur, sem þá stunduðu nám í menntadeildum héraðsskólans, um það bil 90, voru fyrstu reglulegir nemendur menntaskólans, og fyrstu stúdentar hans voru brautskráðir vorið 1954. Nemendafjöldi var að meðaltali nálægt hundraði fram til 1965. Þá var tekið upp svokallað annakerfi, en skólinn var fyrstur íslenskra skóla til að taka upp það skipulag. Nemendum fjölgaði og síðustu ár hafa þeir verið um 170.
Skólinn hefur frá upphafi lagt aðaláherslu á bóklegt nám með það að markmiði að veita staðgóðan undirbúning að framhaldsnámi í háskólum og öðrum sérskólum, auk þess að veita menntun er nýtist sem best í daglegu lífi og tómstundum.

Menntaskólinn að Laugarvatni er vel búinn kennslutækjum og við hann er gott bókasafn, Stofa íslenskra fræða, sérstofur í náttúruvísindum og tölvuver með  venjubundnum  tækjabúnaði og  algengasta skrifstofuhugbúnaði.  Skólahús og heimavistir eru tengdar internetinu með þráðlausri og víraðri tengingu.  Nemendur eiga í auknum mæli fartölvur þegar þeir koma í skólann og fer notkun fartölva og tölvutengds tækjabúnaðar vaxandi í námi og kennslu.
Þeir sem stunda nám við Menntaskólann að Laugarvatni eru að byggja traustan grunn undir framtíð sína og ævilanga vináttu samferðarmanna.
Megir þú njóta og vel lifa.
Halldór Páll Halldórsson
skólameistari