Um námsráðgjöf í ML
Við Menntaskólann að Laugarvatni starfar einn náms- og starfsráðgjafi í hálfu starfi, Gríma Guðmundsdóttir.
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa við skólann er að standa vörð um velferð nemenda og vera málsvari þeirra og trúnaðarmaður innan skólans. Náms- og starfsráðgjafi leitast við að aðstoða nemendur við lausn ýmissa mála sem upp koma. Hann starfar í þágu nemenda, styður þá og liðsinnir í málum sem snerta m.a.
- Nám, námstækni og prófkvíða
- Náms- og starfsval
- Persónuleg mál
Markmið náms- og starfsráðgjafar er að auðvelda einstaklingum að átta sig á eigin óskum og vilja og efla færni þeirra til að taka farsælar ákvarðanir um nám og starf.
Þjónusta náms- og starfsráðgjafa stendur öllum nemendum skólans til boða og eru þeir ávallt velkomnir hvort sem erindið er stórt eða smátt. Náms- og starfsráðgjafa er einnig ætlað að aðstoða foreldra/forráðamenn, kennara og aðra samstarfsmenn í málum einstakra nemenda.
Hafi nemendur greiningar um námserfiðleika eru þeir hvattir til að koma þeim sem allra fyrst til skila til náms- og starfsráðgjafa skólans.


