Kennslu- og námsaðstaða
Aðstaða til heimanáms nemenda er á heimavistarherbergjum og í bókasafni skólans. Sérstakur lestími er þar mánudaga til fimmtudaga frá kl. 17.00 til 18.00. Auk þess eru kennslustofur skólans opnar nemendum til afnota við nám sitt til kl. 23 á kvöldin.
Að jafnaði hefur hver grein sína kennslustofu og bera stofurnar flestar nafn sitt af því.


