Þjónusta þvottahúss er innifalin í heimavistargjaldi nemenda. Gjaldfært er lágmarks grunngjald á önn að upphæð kr. 6.500,-. Í þvottahúsi starfa tveir þvottatæknar í einu og hálfu stöðugildi. Þessi störf heyra undir umsjónarmann fasteigna.
Nemendur koma með óhreinan merktan þvott, með þvottanúmeri sem þeim er úthlutað, og flokka sjálfir í þar til gerða balla. Að jafnaði geta nemendur sótt hreinan þvottinn, samanbrotinn einum eða tveimur dögum síðar, í merktar þvottgrindur sínar. Þvottahúsið ber ekki ábyrgð á týndum eða skemmdum þvotti nema sannanlega sé það vegna handvammar starfsmanna eða bilaðra tækja. Nemendum ber að fylgjast með því að þvottanúmerin séu ávallt auðlesanleg á þvottinum.


