Mötuneyti ML er sjálfseignarstofnun með sjálfstæða kennitölu undir yfirstjórn skólanefndar. Skólameistari er ábyrgur fyrir rekstri mötuneytisins í umboði skólanefndar og bryti/matreiðslumeistari sér um daglegan rekstur, stjórnun, innkaup og eldamennsku. Gjaldkeri/bókari sér um viðskiptamannabókhald, greiðslu reikninga, launavinnslu og innheimtu.
Mötuneytið er rekið á svonefndum núll-grunni, þ.e. markmiðið er að það sé rekið með lágmarks hagnaði. Mötuneytið er til að þjónusta nemendur og starfsmenn með góðum heimilismat þar sem gætt er að hollustu á sanngjörnu verði. Allir nemendur sem dvelja á heimavistum skólans eru í fullu föstu fæði virka daga. Um helgar eru svonefnd helgarkort sem götuð eru eftir notkun. Nemendur skrá sig inn á fæði um helgar. Nemendur utan heimavista og starfsmenn geta keypt einstakar máltíðir með skráningu á þar til gert blað í mötuneyti. Mötuneytið gerir, eftir þörf og óskum, samninga um sölu fæðis við verktaka sem vinna á vegum skólans og/eða aðra verktaka. Verðlagning þess er með öðrum hætti en annarra og er hagnaður vegna þess nemendum til hagsbóta.
Morgunmatur er á tímabilinu 7:30-8:15
Hádegismatur er á tímabilinu 12:00-13:00 en á föstudögum 11:25-12:10
Miðdagskaffi er á tímabilinu 15:20-16:10
Kvöldmatur er á tímabilinu 18:00-19:00
Um helgar er morgun/hádegisverður á tímabilinu 10:00-13:00 og kvöldmatur á tímabilinu 18:00-19:00


