Aðgangs- og notkunarreglur vegna tölvukerfis ML.
Tölvukerfi ML – nemendur.
- „Tölvukerfi ML – nemendur“ er til að efla nám nemenda. Það er sett upp og því viðhaldið eingöngu vegna náms þeirra í Menntaskólanum að Laugarvatni.
- Sérhver nemandi ML fær aðgang að netinu, víruðu sem þráðlausu. Um leið undirgengst hann reglur þessar.
- Nemendum, notendum tölvukerfisins, er óheimilt að:
b. hlaða niður efni af netinu sem stangast á við alþjóðlegar reglur.
c. nýta sér tölvukerfi ML til sérhverra þeirra gjörða sem eru brot á landslögum eða alþjóðlegum lögum.
- Viðurlög við brotum á reglum þessum getur gefið tilefni til áminningar og jafnvel brottvikningar úr skóla eftir eðli brots. Öll brot skulu rædd í skólaráði.
- Skólinn ábyrgist ekki samfelldan uppitíma kerfisins né að allsstaðar í húsnæði skólans sé ætíð gott aðgengi að þráðlausu sem víruðu kerfi.
- Skólinn áskilur sér rétt til að setja sérstakar reglur um gæði tölvubúnaðar nemenda til að þeir hafi möguleika á að nýta sér kerfið með viðunandi hætti.
- Endurskoðun þessara reglna fer fram þegar skólaráð metur þörf á því.
Samþykkt í skólaráði 5. desember 2006. Breyting gerð 8. janúar 2010.


