Payday loans

Skólasóknarreglur

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

Skólasóknarreglur Menntaskólans að Laugarvatni

1. Nemendum ber að mæta stundvíslega í allar kennslu­stundir. Skróp er brot á skólareglum. Geti nemandi ekki sótt kennslustund vegna veikinda eða af öðrum lögmætum ástæðum ber hann (eða forráðamaður, sé nemandinn ólögráða) ábyrgð á að tilkynna það á skrifstofu skólans fyrir kl. 8.15 sérhvern dag sem um slíkt er að ræða.

2. Merkingar í kladda eru eftirfarandi:

F ef nemandi mætir ekki í kennslustund. Hér breytir engu hvaða ástæður eru fyrir fjarvistunum.

S ef nemandi kemur of seint í kennslustund eða hverfur úr kennslustund áður en henni lýkur.

3.  Við lok hvers uppgjörstímabils fjarvista (hvert tímabil er að jafnaði 3 vikur) skulu fjarvistastig nem­enda talin saman og birt þeim.

Nemendum ber að fylgjast sjálfir með mætingastöðu sinni í upplýsingakerfi framhaldsskólanna, Innu.

Forráðamenn ólögráða nemenda hafa aðgang að Innu og geta þar fylgst með stöðu barna sinna.

4A. LÖGRÁÐA NEMENDUR: Forföll vegna veikinda umfram einn dag samfellt, skulu ekki fjölga fjarvistastigum nemanda ef hann leggur fram vottorð frá heilsugæslustöð eða lækni, yfir alla veikindadaga, innan viku frá síðasta veikindadegi.

Fyrsti veikindadagur er talinn sem hverjar aðrar fjarvistir.

4B. ÓLÖGRÁÐA NEMENDUR: Forföll vegna veikinda umfram einn dag samfellt, skulu ekki fjölga fjarvistastigum nemanda ef forráðamaður hans tilkynnir um veikindi hans í upphafi hvers kennsludags. (Sjá nánar um fyrirkomulag veikindatilkynninga í viðauka við reglurnar)

Fyrsti veikindadagur er talinn sem hverjar aðrar fjarvistir.

5. Sé nemandi frá skóla í meira en einn dag vegna brýnna persónulegra erinda getur hann (eða forráðamaður hans, sé hann ólögráða) sótt um niðurfellingu fjarvistastiga til skólaráðs.

Fyrsti dagurinn skal þó talinn sem venjulegar fjarvistir.

Slík umsókn skal vera skrifleg og skilað fyrirfram, nema sérstakar ástæður hamli. Einnig geta nemendur sótt um niðurfellingu fjarvistastiga ef þeir komast ekki í skóla vegna veðurs, ófærðar eða annarra orsaka sem þeir bera enga ábyrgð á.  Skólaráð getur fellt niður fjarvistastig fyrir kennslustundir sem nemendur missa af vegna starfa fyrir skólann, námsferða eða þátttöku í menningarlífi og íþróttum.

6.  Nemendur fá einkunn fyrir skólasókn. Sé fjar­vista­hlutfall 5% eða lægra fá þeir einkunnina 10.  Eftir það lækkar einkunn um 1 við hvert 1% sem bætist við fjarvistahlutfallið.

7.  Fari fjarvistahlutfall nemanda yfir 13,99% einhvern tíma eftir 1. tímabil skólaársins, að frádregnum lögmætum forföllum, telst hann vera búinn að segja sig úr skóla. Þetta felur í sér að hann hverfur úr skóla án próftökuréttar og telst ekki lengur nemandi við skólann.

8. Ef nemandi þjáist af langvinnum sjúkdómi ber honum að skila inn vottorði frá sérfræðingi á viðkomandi sviði þar sem fram koma helstu upplýsingar um sjúkdóminn og möguleg áhrif hans á skólasókn.

Nemandi sem leggur fram vottorð af þessu tagi skal ávallt skila inn skriflegri skýrslu, jafnskjótt og hann kemst í skóla aftur eftir fjarvistir, um þá tíma sem hann gat ekki sótt skóla vegna viðkomandi sjúkdóms.

Verði nemandi uppvís að því að misnota opið vottorð eins og hér er um að ræða, áskilur skólinn sér rétt til hætta að taka það til greina.

9.  Nemandi sem stríðir við langvarandi heilsuleysi eða annað sem kemur í veg fyrir að hann fái sótt skóla með reglubundnum hætti, getur sótt um undanþágu frá  þessum reglum til skólaráðs.

Sé slík undanþága veitt fær nem­and­inn ekki skólasóknareinkunn.

10.  Hafi nemandi ekkert fjarvistastig (F) á heilu tímabili skal draga 8 frá uppsöfnuðum fjarvista­stigum hans.

1 fjarvistastig gefur 7F í frádrátt og 2 fjarvistastig 6F.

11. Þegar um er að ræða að nemandi á stöðugt í vanda með að uppfylla skólasóknarreglur og er með skólasóknareinkunn undir 4 við lok skólaárs, á hann ekki trygga skólavist næsta skólaár.

12.  Reglur þessar gilda fyrir alla reglulega nemendur skólans. Óski nemandi að stunda nám utanskóla getur hann sótt um það við upphaf skólaárs eða annar.

13. Endurskoðaðar reglur voru samþykktar í skólaráði 24. janúar 2006 og taka ákvæði þeirra þegar gildi.

Viðaukar um framkvæmd reglnanna:

A. Þar sem reglurnar fela í sér möguleika á frádrætti frá uppsöfnuðum fjarvistastigum skv. 10. grein eru allar fjarvistir í einn dag, hverju nafni sem nefnast, skráðar sem F. Þarna gildir einu hverjar ástæður eru fyrir fjarvistunum.

Ef um er að ræða endurteknar fjarvistir af sama toga, t.d. vegna ökuprófa eða reglulegra tannlæknaferða eru fjarvistastig felld niður á grundvelli vottorða frá viðkomandi.

B. Fyrsti veikindadagur skv. gr. 4 reiknast að lágmarki sem 5 fjarvistastig.

C. Bókun skólaráðs vegna 7. greinar:

Áminningarferill vegna framkvæmdar þessarar greinar:

a. LOK 1. TÍMABILS: Nemandi sem fer yfir 13.99% fjarvistahlutfall eftir fyrsta tímabil skólasóknar er kallaður í viðtal og fær alvarlega viðvörun. Forráðamönnum ólögráða nemenda er tilkynnt um stöðu mála.

b. LOK 2. TÍMABILS: Verði hann enn yfir ofangreindu hlutfalli í lok 2. tímabils fær hann tilkynningu um að hann sé orðinn utanskóla, en getur þá sótt um, með formlegum hætti, að fá tækifæri í 1 tímabil til að bæta sig.

c. LOK 3. TÍMABILS: Verði enn hið sama uppi á teningnum í lok 3. tímabils er ekki um að ræða neinar frekari tilslakanir og fer þá eins og fram kemur í 7. grein: nemandinn hverfur úr skóla án próftökuréttar og telst ekki lengur nemandi við skólann.

D. Tilkynningar forráðamanna vegna veikinda barna sinna.

Forráðamenn bera ábyrgð á því að tilkynningar um veikindi berist skrifstofu skólans að morgni hvers dags sem nemandinn er veikur. Þetta gerir hann með því annað hvort að tilkynna veikindin í síma 4861156 eða senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Sérhver forráðamaður fær frá skólanum ákveðið lykilnúmer sem ávallt þarf að fylgja veikindatilkynningum.

Endurskoðað og uppfært í júní 2009