Skólinn hefur tvívegis áður tekið þátt í nemendaskipum við Herzog Christian-August Gymnasium í Sulzbach-Rosenberg. Skólinn er í Bayern skammt austan Nürnberg.
Í fyrsta skiptið sem samskiptin áttu sér stað fór 16 manna hópur nemenda með einum kennara utan í okt./nóv.1996 og dvaldi þar í hálfan mánuð. Þjóðverjarnir endurguldu síðan heimsóknina í apríl vorið eftir.
Sameiginlegt umfjöllunarefni nemendanna í þessum heimsóknum var: Umhverfi - land - menning.
Önnur samskiptalotan var síðan haustið 1999. Þá komu þýsku nemendurnir hingað í byrjun september en nemendurnir héðan fóru utan í október. Umfjöllunarefnið í þessari lotu var: Gróðurfar, loftslag og nýting landgæða.
Skólaárið 2004-5 er síðan þriðja samskiptalotan.
Þann 5. september 2004 komu 20 nemendur frá HCA Gymnasium á Laugarvatn ásamt kennara sínum. Hópurinn dvaldi í ML meðan á heimsókninni stóð, en markmið heimsóknarinnar var að vinna að verkefnum sem tengjast ferðamennsku (Tourism and Environment: Nature in the Mind of the People). 20 nemendur úr ML taka þátt í verkefninu fyrir skólans hönd.
Meðan á dvölinni stóð vann þessi hópur nemenda að verkefnum sem tengjast yfirskrift verkefnisins og ferðaðist einnig töluvert um ferðamannaslóðir, aðallega í uppsveitunum og á hálendinu.
Hilmar J. Bragason, efnafræðikennari er umsjónarmaður verkefnisins fyrir hönd ML.
Þessi samskipti skólanna tveggja eru styrkt af menntaáætlun Evrópusambandsins, Sokrates/Comenius.
Í seinni hluta október heimsóttu íslensku þátttakendurnir síðan þýska skólann í samskonar erindagerðum.
Vefsíðu verkefnisins má finna hérna.


