Payday loans

Eineltisáætlun

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

Einelti er ekki liðið í Menntaskólanum að Laugarvatni, eins og kemur fram í 10. grein heimavistarreglna skólans. Komi upp grunur um einelti innan skólans skal tekið á málunum strax. Sú vinna er í höndum eineltisráðs. Í því sitja:

  • Skólameistari
  • Aðstoðarskólameistari
  • Húsbóndi á heimavist
  • Náms- og starfsráðgjafi, sem leiðir hópinn. Öllum upplýsingum um eineltismál er komið til náms- og starfsráðgjafa og heldur hann utan um þær.

 

Skólinn styðst við þá skilgreiningu á einelti sem kemur fram í reglugerð nr. 1000/2004, 3. grein:

Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir.

Dæmi um birtingarmyndir eineltis:

  • Starf, hæfni og verk þolandans eru lítilsvirt
  • Stríðni
  • Hótanir
  • Útilokun
  • Líkamlegt ofbeldi
  • Niðurlæging eða auðmýking t.d. vegna aldurs, kynferðis, kynhneigðar eða þjóðernis
  • Niðurlægjandi eða lítilsvirðandi texti eða myndir í tölvupósti, á samskiptasíðum eða öðrum skriflegum sendingum
  • Fjandskapur eða þögn þegar spurt er eða fitjað upp á samtali
  • Óþægileg stríðni eða tilraun til fyndni á kostnað annarra
  • Rógi eða meiðandi sögusögnum er komið af stað
  • Útilokun frá félagslegum samskiptum
  • Særandi athugasemdir

 

Viðbragðsáætlun - nemendur

Verði nemandi fyrir einelti eða hefur vitneskju um að einelti sé viðhaft gagnvart öðrum nemanda skal hann upplýsa það til eineltisráðs. Jafnframt ef kennari verður var við einelti meðal nemenda skal hann greina eineltisráði frá því. Þegar trúnaðaraðilar nemenda fá vitneskju um einelti bregðast þeir við samkvæmt þessari viðbragðsáætlun. Lögð er áhersla á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frekara einelti.

Grunur um einelti

Eineltisráð fær ábendingu um einelti. Það skráir niður og aflar upplýsinga.

Staðfestur grunur um einelti

Meðlimir eineltisráðs hafa samband við aðila málsins, nemendur og/eða forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri. Unnið í málinu þar til lausn fæst. Þolendum og/eða gerendum veittur stuðningur og aðhald, eftir eðli máls. Kennarar og annað starfsfólk, eftir atvikum, upplýst um eineltið. 

Kannað er eftir ákveðinn tíma hvort eineltinu hefur linnt.  Ef svo er ekki getur þurft að leita aðstoðar aðila utan skólans við lausn málsins.

 

Viðbragðsáætlun - starfsfólk

Starfsmaður sem verður fyrir eða hefur vitneskju um einelti skal tilkynna það til eineltisráðs. Starfsmenn geta jafnframt leitað til trúnaðarmanns síns og/eða stéttarfélags.

Þegar yfirmaður eða trúnaðarmaður fá vitneskju um einelti bregðast þeir við samkvæmt þessari viðbragðsáætlun. Strax er metin þörf þolanda fyrir bráðan stuðning og hann veittur. Lögð er áhersla á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frekara einelti. Ef til þess kæmi að starfsmaður leggi nemanda í einelti skal brugðist við samkvæmt þessari áætlun.

Sá aðili, sem samband er haft við, ákvarðar síðan í samráði við þolandann hvert framhaldið er. Hægt er að velja á milli óformlegrar eða formlegrar málsmeðferðar.

Óformleg málsmeðferð

Slík málsmeðferð felur í sér að leitað er upplýsinga hjá þolanda og geranda, eftir atvikum, og þeim veittur stuðningur með trúnaðarsamtali, ráðgjöf og/eða aðhald. Aðrir innan skólans eru ekki upplýstir um málið.

Formleg málsmeðferð

Gerð er hlutlaus athugun á málsatvikum. Rætt er við þolanda, geranda og aðra sem veitt geta upplýsingar um málið. Mikilvægt er að leita upplýsinga um tímasetningar og fá fram gögn ef einhver eru, s.s. tölvupóst, sms-skilaboð eða annað.

Fundin er lausn sem m.a. getur falist í breytingum á vinnustaðnum, vinnubrögðum eða vinnuskipulagi. Gerandi fær leiðsögn og aðvörun, hann gæti líka verið færður til í starfi.  

Málinu er fylgt eftir og rætt við aðila þess að ákveðnum tíma liðnum. Fylgst er með samskiptum aðila málsins. Ef lausn virðist ekki í sjónmáli getur þurft að leita aðstoðar utan skólans. Láti gerandi ekki segjast og viðheldur eineltinu leiðir það til uppsagnar hans úr starfi.

  

Forvarnir

Áhersla á jákvæð samskipti í skólasamfélaginu og skýr stefna um að einelti sé ekki liðið er lykilþáttur í forvörnum.  Það er því mikilvægt að efla vitund allra í skólasamfélaginu um jákvæð samskipti og að þau einkenni allt starf skólans. Í ML er lögð áhersla á að:

  • Umræður og verkefni um jákvæð samskipti séu eðlilegur hluti af skólastarfi m.a. með því að:
            - Skýr stefna skólans sé kynnt sem víðast.
            - Verkefni í lífsleikni fjalli m.a. um einelti og samskipti.
            - Kennarar séu vakandi fyrir því að taka upp umræðu um jákvæð samskipti í hópum.
  • Skólinn sé eftirsóttur vinnustaður fyrir nemendur og starfsfólk m.a. með:
           - hlýlegu og hvetjandi andrúmslofti þar sem gagnkvæm virðing er ríkjandi.
           - starfsfólk sé vakandi fyrir einelti og öðrum neikvæðum samskiptum og bregðist við
              á viðeigandi hátt.
  • Stuðlað sé að fjölbreyttu og heilbrigðu félagslífi nemenda og starfsfólks m.a. með því að:
          - Sköpuð séu tækifæri og svigrúm til að sinna uppbyggilegu og jákvæðu félagslífi.