Menntaskólinn að Laugarvatni er aðili að verkefninu „Heilsueflandi framhaldsskóli" frá og með þessu skólaári. Það er Lýðheilsustöð sem heldur utan um verkefnið og er Héðinn Svarfdal Björnsson starfsmaður Lýðheilsustöðvar umsjónarmaður þess. 23 framhaldsskólar landsins taka þátt í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli.
Fjallað verður um næringu fyrsta þátttökuárið, hreyfingu hið næsta, svo geðrækt og fjórða veturinn verður unnið almennt með lífsstíl.
Stýrihópur í ML vegna verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli:
Gríma Guðmundsdóttir, námsráðgjafi, verkefnisstjóri
Áslaug Harðardóttir, þýskukennari, verkefnisstjóri
Sveinn R. Jónsson, matreiðslumeistari
Ólafur Guðmundsson, íþróttakennari
Pálmi Hilmarsson, umsjónarmaður og forvarnarfulltrúi
Jóhanna Herdís Sævarsdóttir og Ástrún Svala Óskarsdóttir, skólaráðsfulltrúar nemendafélagsins Mímis
Sjá nánar: http://www.lydheilsustod.is//heilsueflandiframhaldsskolar


