Skólagerð
Skólastarfið byggir á fjórum hornsteinum, hvað námsskipulag varðar. Þeir eru brautir skólans, bekkir, einingakerfi og áfangaskipan.
Brautaskipting
Í skólanum eru tvær bóknámsbrautir til stúdentsprófs: félagsfræðibraut og náttúrufræðibraut.
Bekkjakerfi
Hvor braut skiptist í bekki eftir námsárum. Nemendur fylgja því sínum bekk í öllum námsgreinum frá upphafi náms til loka. Möguleikar eru þó á tilfærslu milli brauta í samráði við skólastjórnendur. Einnig hefur afburðanemendum gefist kostur á að taka bekki utanskóla og hlaupa þannig yfir bekk í skólanum. Nýir nemendur sem hafa lokið annars staðar hluta þess náms sem kennt er í þeirra bekk, geta sótt um að vera undanþegnir þeim greinum þar til þeir eru komnir á rétt ról.
Einingakerfi
Allt nám við skólann er mælt í einingum á sama hátt og í öðrum framhaldsskólum. Hver eining er í kennslu talin jafngilda einni kennslustund á viku í 2 annir eða tveimur kennslustundum á viku í eina önn. Hver eining er einnig talin jafngilda um það bil einnar viku vinnu, hvað varðar tímasókn, próf og heimavinnu. Til stúdentsprófs eru 140 einingar, en það merkir að nemendur ljúka um 35 einingum á hverju námsári eða 17-18 einingum á önn.
Áfangaskipan náms
Eins og í öðrum framhaldskólum sem starfa skv. aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins skiptast námsgreinar allar í áfanga sem lokið er á einni eða tveimur önnum. Áfangar eru ýmist 1, 2 eða 3 einingar. Áföngum innan einstakra námsgreina er raðað í ákveðna röð, eftir því hvort þeir byggja hver á öðrum (krefjast undanfara) eða eru sjálfstæðir.
Áfanganúmer bera í sér ýmsar þessara upplýsingar. Þannig segir fyrsti tölustafur áfanganúmers til um undanfara. Áfanganúmer sem hefst á 1, t.d.
STÆ 103
merkir að þar sé enginn undanfari. Hefjist númerið hins vegar á 2, þýðir það að undanfari sé að áfanganum og númer þess undanfara skuli hefjast á 1. Dæmi:
STÆ 203
Miðnúmer segir til um hvort um sé að ræða grunnáfanga í grein. Talan 0 merkir að svo sé, en sé talan t.d. 1 merkir hún að um sé að ræða hliðaráfanga, t.d.
STÆ 313
Aðrar miðtölur bera með sér fleiri upplýsingar um stöðu áfangans í kerfinu. Þannig merkir talan 7 að um valáfanga á vegum skóla sé að ræða, talan 9 að um foráfanga sé að ræða o.s.frv.
Þriðja talan segir til um hve margar einingar viðkomandi áfangi telji. Áfanganúmerið
STÆ 303


