Payday loans

Aðbúnaður og öryggi

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

Það er markmið í ML að aðbúnaður starfsmanna og nemenda sé eins góður og kostur er hverju sinni.

Við skólann er öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður, sbr. lög nr. 46/1980 en 5. grein þeirra laga segir: "5. gr. Í fyrirtækjum, þar sem eru 10 starfsmenn eða fleiri, skal atvinnurekandi tilnefna einn aðila af sinni hálfu öryggisvörð og starfsmenn skulu tilnefna annan úr sínum hópi öryggistrúnaðarmann. Þeir skulu í samvinnu fylgjast með því, að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað séu í samræmi við lög þessi."

Öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður mynda öryggisnefnd.

Skólinn setur sér ákveðin markmið varðandi öryggi og viðbúnað þar sem m.a. er fjallað um hvernig bregðast beri við skyndilegum áföllum.

Öryggisnefnd er skipuð til tveggja ára í senn. Hún ber ábyrgð á:  öryggismálum stofnunarinnar, að eftirlit með vélum, tækjum og skaðlegum efnum fari fram, að upplýsingar um öryggismál og neyðarútganga séu aðgengilegar í öllum húsakynnum skólans, að halda skyndihjálparnámskeið fyrir starfsfólk og æfingar varðandi viðbrögð við bruna og jarðskjálftum.

Öryggisnefnd ber einnig að fylgjast með að reglugerðir Vinnueftirlits ríkisins og heilbrigðiseftirlits séu í heiðri hafðar og að kalla til skoðunarmenn frá þessum stofnunum þegar ástæða þykir til.

Í öryggisnefnd sitja Pálmi Hilmarsson umsjónarmaður fasteigna, tilnefndur öryggisvörður skólans, og Helgi Helgason, tilnefndur öryggistrúnaðarmaður af starfsmönnum.  Einnig starfa skólameistari og bryti náið með öryggisnefnd.

Öryggisnefnd skal funda einu sinni á önn og oftar ef þurfa þykir.