Payday loans

Bókasafn

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

Bókasafn Menntaskólans að Laugarvatni, Menntaskólahúsinu.

Sími 486-1113, netfang: bokasafn(hjá)ml.is valgerdur

Forstöðumaður bókasafns Menntaskólans að Laugarvatni er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , bókasafns- og upplýsingafræðingur.

Hlutverk bókasafnsins er að þjóna nemendum, kennurum og starfsfólki Menntaskólans.
Einnig er í gildi þjónustusamningur við sveitarfélagið Bláskógabyggð um þjónustu við grunnskóla- og leikskólanema sveitarinnar, sem og almenning.
Safnkostur telur u.þ.b. 15.-20.000 eintök, aðallega bækur og tímarit.
Meginhluti safnefnis er skráður í bókasafnskerfið Metrabók og er sífellt unnið að frekari skráningu efnis.

Allir nemendur Menntaskólans að Laugarvatni eiga rétt á faglegri bókasafns- og upplýsingaþjónustu á bókasafni skólans,  endurgjaldslaust. Þeir hafa jafnan aðgang að upplýsingum án tillits til félagslegrar stöðu eða uppruna.  Safnið er búið bókum, tímaritum, myndefni og öðrum safnkosti, sem tengist skólastarfi.  Jafnframt er veittur aðgangur að rafrænum gögnum innan skóla og á netinu. Bókasafns- og upplýsingafræðingur á að veita nemendum, kennurum og öðrum starfsmönnum virka upplýsingaþjónustu og stuðla þannig að upplýsingalæsi og samþættingu sjálfstæðrar þekkingarleitar og kennslugreina. Lesaðstaða, vinnuaðstaða og aðgangur að tölvum er í tengslum við safn.


 

Opnunartímar safnsins skólaárið 2012-2013 eru:

Mánudagar     09.00-12.15 og 13.00-17.00 vinna a bokasafni
Þriðjudagar     09.00-12.15 og 13.00-17.00
Miðvikudagar 13.00-18.00
Fimmtudagar  10.30-12.15 og 13.00-17.00
Lestímar menntaskólanema eru mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 17:00-18:00
 
Grunnskólatímar eru á fimmtudögum frá kl. 09.00-10.30.