Brautskráning stúdenta og skólaslit verða á laugardaginn kemur, 25. maí. Hátíðardagskrá hefst í íþróttahúsinu kl. 14:00. Að henni lokinni er gestum boðið til kaffisamsætis í matsal skólans.
Það verða brautskráðir 36 stúdentar þessu sinni, ef að líkum lætur, 14 af félagsfræðibraut og 22 af náttúrufræðibraut.
Um kvöldið koma síðan júbílantar frá ýmsum tímum saman til hátíðarkvöldverðar, svo sem venja er.
-pms
Nú, líkt og undanfarin ár, fara nemendur á öðru ári náttúrfræðibrautar út í sumarið með það verkefni að gera plöntusafn sem hluta af námsefni í vistfræði.
Í þetta sinn varð sú nýbreytni að þeir sem eiga snjallsíma eða hafa aðgang að slíkum símum (iphone eða android) gafst kostur á að hlaða inn í símana forriti, sem auðveldar plöntugreininguna, sér að kostnaðarlausu. Forritið eða appið nefnist Plöntulykillinn og var hannað af Sigmundi Helga Brink og Guðmundi Frey Hallgrímssyni.
| ENDURTÖKUPRÓF 2013 | |||||
| Prófin hefjast kl 10:00 báða dagana. | |||||
| MAÍ | 1. bekkur | 2. bekkur | 3. bekkur | ||
| MÁN | 27 | UPP103 | EFN103203 | SAG303 | |
| FÉL103203 | ENS303403 | ||||
| ÍSL103203 | ÞÝS103 | ||||
| NÁT123 | SAG103203 | ||||
| FRA103 | |||||
| MIÐ | 29 | STÆ103203 | STÆ303313 | STÆ403503 | |
| NÁT103 | |||||
| LÍF103 | |||||
Það verður haft samband við þá nemendur sem hér er um að ræða. Þeir geta séð upplýsingar um stöðu sína í INNU og haft samband við skólann ef eitthvað er óljóst.
- pms
Síða 1 af 100