Nú hefur verið settur upp varanlegur hlekkur á myndböndin þrjú sem urðu hlutskörpust í myndbandasamkeppni sem efnt var til fyrr í vor í tilefni af 60 ára stofnafmæli skólans. Hlekkurinn er hér til hægri á forsíðunni - Kynningarefni.
Njótið.
- pms
Einhvern veginn er það nú svo, að ef einhverjum í þessum skóla dettur í huga að gera eitthvað sem ekki er venjulegt og sem einhverjum öðrum finnst nokkuð skemmtilegt, þá er það óðar orðið að hefð. Þannig var þetta með bekkjarbúninga annars bekkjar.
Í dag átti sér stað árlegur vatnsslagur að vori, undir öruggri stjórn og vökulu auga Pálma Hilmarssonar, húsbónda. Tilgangur þessa ats er fyrst og fremst að koma kroppnum á hreyfingu og brosi á andlitin á prófatíma. Allt fór hið besta fram sem fyrr, en myndir fjalla betur um svona nokkuð en orðin geta.
- pms
Síða 1 af 98