Nú er reglulegum prófatíma lokið. Framundan er undirbúningur fyrir brautskráningu og skólaslit, vinnsla einkunna og endurtökupróf. Skólanum verður slitið og stúdentar brautskráðir, laugardaginn 25. maí.
Á þriðjudag, 21. maí, er reiknað með að allar einkunnir liggi fyrir og þá verður hægt að ákvarða skipulag endurtektarprófa og vera í sambandi við þá sem eiga kost á að bæta stöðu sína með þeim hætti.
Það er mikilvægt að nemendur sem eru í þeirri stöðu að eiga mögulega rétt á að fara í endurtökupróf, fylgist grannt með gangi mála og verði í góðu sambandi við skólann.
Endurtökuprófin verða haldin dagana 27. - 29. maí og verður skipulag þeirra kynnt hér á þriðjudaginn kemur.
-pms
Nú hefur verið settur upp varanlegur hlekkur á myndböndin þrjú sem urðu hlutskörpust í myndbandasamkeppni sem efnt var til fyrr í vor í tilefni af 60 ára stofnafmæli skólans. Hlekkurinn er hér til hægri á forsíðunni - Kynningarefni.
Njótið.
- pms
Einhvern veginn er það nú svo, að ef einhverjum í þessum skóla dettur í huga að gera eitthvað sem ekki er venjulegt og sem einhverjum öðrum finnst nokkuð skemmtilegt, þá er það óðar orðið að hefð. Þannig var þetta með bekkjarbúninga annars bekkjar.
Síða 1 af 99