Payday loans

Skólaárinu að ljúka

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

tickedboxNú er reglulegum prófatíma lokið. Framundan er undirbúningur fyrir brautskráningu og skólaslit, vinnsla einkunna og endurtökupróf. Skólanum verður slitið og stúdentar brautskráðir, laugardaginn 25. maí.

Á þriðjudag, 21. maí, er reiknað með að allar einkunnir liggi fyrir og þá verður hægt að ákvarða skipulag endurtektarprófa og vera í sambandi við þá sem eiga kost á að bæta stöðu sína með þeim hætti.

Það er mikilvægt að nemendur sem eru í þeirri stöðu að eiga mögulega rétt á að fara í endurtökupróf, fylgist grannt með gangi mála og verði í góðu sambandi við skólann.

Endurtökuprófin verða haldin dagana 27. - 29. maí og verður skipulag þeirra kynnt hér á þriðjudaginn kemur.

-pms

 

Varanlegur hlekkur á myndefni.

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

ml60utiNú hefur verið settur upp varanlegur hlekkur á myndböndin þrjú sem urðu hlutskörpust í myndbandasamkeppni sem efnt var til fyrr í vor í tilefni af 60 ára stofnafmæli skólans. Hlekkurinn er hér til hægri á forsíðunni - Kynningarefni.

 Njótið.

- pms

 

Í öðrum bekk er yndislegt að vera

  • Skoða sem PDF skjal
  • Prentvæn útgáfa
  • Senda í tölvupóst

bekkjarbuningarEinhvern veginn er það nú svo, að ef einhverjum í þessum skóla dettur í huga að gera eitthvað sem ekki er venjulegt og sem einhverjum öðrum finnst nokkuð skemmtilegt, þá er það óðar orðið að hefð. Þannig var þetta með bekkjarbúninga annars bekkjar.

Nánar...

 

Síða 1 af 99