Innritun

Innritunarskilyrði

Forsendur innritunarreglna eru nýr, opinber matskvarði í grunnskólum þar nemendur hljóta hæfnieinkunnir í lok 10. bekkjar, þar sem eingöngu er notast við bókstafi.

Þessi kvarði er eins og hér má sjá:

Hæfni-
einkunn
Texti
A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námi
með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
B+ Þessi einkunn þýðir að nemandinn er langt kominn með þá hæfni sem krafist er til að hljóta hæfnieinkunnina A.
B Góð hæfni og frammistaða í námi
með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs
C+ Þessi einkunn þýðir að nemandinn er langt kominn með þá hæfni sem krafist er til að hljóta hæfnieinkunnina B.
C Sæmileg hæfni og frammistaða í námi
með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
D Hæfni og frammistöðu í námi ábótavant
með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.

 

Innritun í Menntaskólann að Laugarvatni

Miðað er við að umsækjandi hafi náð hæfniviðmiðum í 4 námsgreinum: íslensku, ensku, stærðfræði og dönsku/norðurlandamáli, sem jafngilda B eða betra, en skólanum er heimilt að víkja lítillega frá þeirri reglu.

Námsgrein Hæfnieinkunn
Íslenska B
Enska B
Stærðfræði B
Danska (Norðurlandamál) B

 

Ef umsóknir eru fleiri en hægt er að verða við og þeir sem velja þarf á milli, reiknast  með svipaðar niðurstöður er litið til annarra þátta og má þar helst nefna: búsetu, skólasókn í grunnskóla, einkunnir í öðrum greinum og ef til vill viðbótargögn sem umsækjendur hafa valið að senda skólanum. Slík viðbótargögn gætu verið vegna þátttöku í félagsstarfi, persónuleg greinargerð eða annað sem umsækjandi óskar að koma á framfæri.

Staðfest innritun

Eftir að innritun hefur verið staðfest fær nemandi póst frá skólanum með ýmsum upplýsingum.

Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?