Skóli og staður

Skólinn

 

Menntaskólinn að Laugarvatni  er framhaldsskóli og heimvistarskóli, sem starfar eftir bekkjakerfi.  Nánast allir nemendur skólans dvelja á heimavist og kaupa fæði í mötuneyti skólans.  Tengsl nemenda innbyrðis og einnig við kennara og annað starfsfólk eru náin og persónuleg, og andrúmsloftið heimilislegt.

Við skólann eru starfræktar tvær bóknámsbrautir til stúdentsprófs, félags- og hugvísindabraut og náttúruvísindabraut.  Nám á bóknámsbrautunum tekur 3 ár og lýkur með stúdentsprófi.

Húsakostur Menntaskólans að Laugarvatni samanstendur að mestu af þremur húsum.  Þau eru skólahúsið sjálft og heimavistir skólans Nös og Kös.  Stærstur hluti starfsemi skólans fer fram í skólahúsinu, enda fer þar fram öll kennsla utan íþrótta.  Auk kennslurýmis er í húsinu bókasafn skólans, eldhús og borðsalur, þvottahús, félagsaðstaða, kennarastofa, skrifstofur og vinnustofur kennara.

 

Skólameistarar

Skólameistarar Menntaskólans að Laugarvatni hafa verið frá upphafi:

  • Sveinn Þórðarson   1953-1959  (í leyfi síðasta árið)
  • Ólafur Briem  1958-1960  (settur skólameistari)
  • Jóhann S. Hannesson  1960-1970
  • Kristinn Kristmundsson  1970-2002  (í leyfi síðasta árið)
  • Halldór Páll Halldórsson 2001- 2022 (í leyfi síðasta árið)
  • Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir 2023-

 

Styrktarsjóður Kristins og Rannveigar

Styrktarsjóður Kristins og Rannveigar var stofnaður 1. september 2007 af hjónunum Kristni Kristmundssyni, fyrrverandi skólameistara á Laugarvatni, og Rannveigu Pálsdóttur og starfsmanni til fjölda ára.

Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega nemendur Menntaskólans að Laugarvatni til frekara náms með fjárhagsaðstoð og um leið hvetjandi viðurkenningu fyrir dugnað og lofsverða ástundun. Á hverju ári skulu að minnsta kosti þrír nemendur hljóta styrk úr sjóðnum. Styrkirnir eru að jafnaði veittir nemendum sem brautskrást það ár og eru tilkynntir við skólaslit. Í sérstökum tilvikum er einnig heimilt að veita nemendum sem enn eru við nám við skólann styrk. Við val á styrkþegum er litið til frábæran dugnaðar, hæfileika og ástundunar í námi. Skólameistari leggur fram tillögur um styrkþega og stjórn sjóðsins tekur endanlega ákvörðun um úthlutun. Sjóðurinn byggir á stofnfé sem var lagt fram við stofnun hans. Markmiðið er að veita styrki af árlegri ávöxtun sjóðsins þannig að höfuðstóllinn varðveitist til framtíðar. Menntaskólinn að Laugarvatni annast fjárvörslu sjóðsins. Styrktarsjóðurinn er þannig bæði hvatning til náms og varanleg virðingarvottur við nemendur sem leggja sig fram í námi við Menntaskólann að Laugarvatni.

Þer sem vilja styrkja sjóðinn geta gert það með að leggja inn á eftirfarandi reiknisnúmer: 0130-05-578537 kt: 630807-1070.

Staðurinn

Menntaskólinn að Laugarvatni stendur við Laugarvatn í Bláskógabyggð, en sveitarfélagið varð til við sameiningu þriggja hreppa árið 2002.  Aðeins er um klukkustundarakstur frá Laugarvatni á höfuðborgarsvæðið, stutt á ýmsa aðra þéttbýlisstaði og miklir merkisstaðir úr sögu þjóðarinnar eru í nánasta nágrenni.

Laugarvatn hefur mikla sérstöðu vegna þess skólasamfélags sem þróast hefur á staðnum lungann úr 20. öldinni.  Þéttbýli fór að myndast á Laugarvatni eftir að þar var byggður héraðsskóli árið 1928.  Þar er íþróttahús, sundlaug og gufubað. Á Laugarvatni er leikskóli og grunnskóli auk menntaskólans.

Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?