Kostnaður í ML

Kostnaður

Vorönn 2027

Áætlaður kostnaður, með fyrirvara um mögulegar breytingar

Kostnaður á önn
Fæðiskostnaður* (fastafæði-áætlun)kr.352.640
Innritunargjaldkr.6.000
Heimavistargjald (áætlun – Kös)kr.105.750
Tölvuþjónustugjaldkr.7.300
Grunngjald þvottahússkr.42.000
Nemendafélagsgjald (valfrjálst)kr.6.000
Samtals:kr.519.690

*Nemendur á heimavist eru í fastafæði virka daga vikunnar.

Ófyrirséður kostnaður

Utan þessara upphæða geta t.d. verið eftirfarandi, ef um það er að ræða:

  • Valgreinagjald
  • Námsbóka- og námsgagnakaup
  • Gjald vegna endurtektarprófa
  • Helgarfæði (klippikort)
  • Fjarnámsáfangar við aðra framhaldsskóla
  • Kaffihúsakvöld 3. bekkjar
  • Dagamunagjald
  • Skólamynd (annað hvert ár) og hópmyndataka nýstúdenta vor hvert á útskrift
  • Annað ótilgreint

Dreifing á greiðslum er fimm sinnum á önn.

Áætlaður raunkostnaður

Jöfnunarstyrkur
Dvalarstyrkur á önn   (lögheimili utan pnr. 840)kr.213.000
Raunkostnaður á önnkr.306.690
Áætlaður raunkostnaður nemenda á Kös á mánuði er u.þ.b.kr.61.338

Uppfært nóvember 2026

Jöfnunarstyrkur

Skv. reglum Menntasjóðs námsmanna um Jöfnunarstyrk  geta nemendur skólans sem eru með lögheimili í póstnúmeri utan Laugarvatns (pnr. 840) sótt um jöfnunarstyrk. Nemendur sækja sjálfir um styrkinn, en skrifstofa skólans getur leiðbeint þeim og aðstoðað við umsóknina ef þarf. Styrkirnir eru greiddir í janúar vegna haustannar og júní vegna vorannar.  Nemendur geta sótt um styrkinn á Mitt lán sem er á heimasíðunni www.menntasjodur.is. Nemendur eru hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins.

 

Verðskrá

Verðskrá skólaárið 2026-27, með fyrirvara um breytingar

Gjald á einingu:
Auka prentkvóti – hvert blað:kr.12,-
Ljósritun – hvert blað:kr.34,-
Útprentun í lit – hvert blað:kr.230,-
Staðfest afrit af skírteinum:kr.1.250,-
Gjald á önn:

 

Endurtektarpróf (5 eininga áfangi)kr.19.000,-
Stöðuprófkr.18.000,-
Valgreinar – fatagerðkr.4.950,-
Valgreinar – myndvinnslakr.4.950,-
Valgreinar – kór*kr.14.900,-
Valgreinar – útivist*kr.16.500,-
Valgreinar – myndlist*kr.10.000,-
Valgreinar - körfubolti**kr.38.000,-
Valgreinar - blak**kr.35.000,-

*með fyrirvara um breytingar

**æfingagjöld, samstarf við UMFL

Gjald fyrir fjarnámsáfanga er skv. gjaldskrá viðkomandi skóla

Fjarnám

Gjald á önn:

Innritunargjaldkr.6.000.-
Kennslugjaldkr.16.000.-

*Námsgjöld gilda fyrir eina önn og fást ekki endurgreidd. Greiðsla námsgjalda í upphafi annar er forsenda þess að sitja áfanga í fjarnámi við ML. 

Gjald vegna heimavistar

Herbergisleiga á mánuði, á mann:

Kös: Eins manns herbergi:kr.23.500
Kös: Tveggja manna herbergi:kr.24.300
Nös:  Eins manns herbergi:kr.39.900
Nös:  Tveggja manna herbergi:kr.35.400
Fjarvist:  Tveggja manna herbergi
kr.39.900

Gjald á ári

Herbergistrygging – ársgjald:
(gjaldfært ef herbergi er ekki skilað í lagi)
kr.40.000
Lyklatrygging – ársgjald:
(gjaldfært ef lykli er ekki skilað)
kr.25.000
Nemendur í lausafæði

Morgunverðurkr.1.485
Hádegisverðurkr.1.900
Miðdegiskaffikr.870
Kvöldverðurkr.1.485
Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?