Þjónusta við nemendur

Bókasafn ML

Hlutverk bókasafnsins er að þjóna nemendum, kennurum og starfsfólki Menntaskólans.

Einnig er í gildi þjónustusamningur við sveitarfélagið Bláskógabyggð um þjónustu við grunnskóla- og leikskólanema sveitarinnar, sem og almenning, hvað varðar útlán og aðra slíka þjónustu á efni í eigu safnsins. Einnig er í boði og sjálfsagt að fá að nýta lesaðstöðu bókasafnsins. Bókasafnið er opið öllum íbúum og almenningi og allir velkomir á auglýstum opnunartíma safnsins.

Safnkostur telur u.þ.b. 20.000 eintök.

Efni bókasafnsins er skráð í bókasafnskerfið Gegni. Slóðin er: https://ml.leitir.is

Allir nemendur Menntaskólans að Laugarvatni eiga rétt á faglegri bókasafns- og upplýsingaþjónustu á bókasafni skólans, endurgjaldslaust. Þeir hafa jafnan aðgang að upplýsingum án tillits til félagslegrar stöðu eða uppruna. Safnið er búið bókum, tímaritum, myndefni og öðrum safnkosti, sem tengist skólastarfi. Jafnframt er veittur aðgangur að rafrænum gögnum innan skóla og á netinu. Bókasafns- og upplýsingafræðingur á að veita nemendum, kennurum og öðrum starfsmönnum virka upplýsingaþjónustu og stuðla þannig að upplýsingalæsi og samþættingu sjálfstæðrar þekkingarleitar og kennslugreina. Lesaðstaða, vinnuaðstaða og aðgangur að tölvum og prentara er í tengslum við safn.

Sími: 480 8806
Netfang: bokasafn@ml.is

  

Náms- og starfsráðgjöf

Við Menntaskólann að Laugarvatni starfar einn náms- og starfsráðgjafi í hálfu starfi.

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa við skólann er að standa vörð um velferð nemenda og vera málsvari þeirra og trúnaðarmaður innan skólans. Náms- og starfsráðgjafi leitast við að aðstoða nemendur við lausn ýmissa mála sem upp koma. Hann starfar í þágu nemenda, styður þá og liðsinnir í málum sem snerta m.a.

    • Nám, námstækni og prófkvíða
    • Náms- og starfsval
    • Persónuleg mál

Markmið náms- og starfsráðgjafar er að auðvelda einstaklingum að átta sig á eigin óskum og vilja og efla færni þeirra til að taka farsælar ákvarðanir um nám og starf.

Þjónusta náms- og starfsráðgjafa stendur öllum nemendum skólans til boða og eru þeir ávallt velkomnir hvort sem erindið er stórt eða smátt. Náms- og starfsráðgjafa er einnig ætlað að aðstoða foreldra/forráðamenn, kennara og aðra samstarfsmenn í málum einstakra nemenda.

Hafi nemendur greiningar um námserfiðleika eru þeir hvattir til að koma þeim sem allra fyrst til skila til náms- og starfsráðgjafa skólans.

Sími: 480 8803

Netfang: nos@ml.is 

 

Viðtalstími náms- og starfsráðgjafa - haustönn 2026

 

mánudagurþriðjudagurmiðvikudagurfimmtudagurföstudagur

 

Viðtalstími

Kl. 9:00 - 12:00

 

Matarhlé

Viðtalstími

Kl. 13:00 - 16:00

Viðtalstími

Kl. 13,:00 - 16:00

Fundur

Viðtalstími

Kl. 13.00 - 16:00 

Viðtalstími

Kl. 14:00 - 16:00

Hjúkrunarfræðingur

Bjarney Vignisdóttir er skólahjúkrunarfræðingur í ML. Hún er til viðtals í Stöðli - vinnuherbergi á kennaragangi á miðvikudögum kl. 13:00 - 15:00.

Skólahjúkrun í framhaldsskóla er ný þjónusta á vegum heilsugæslu landsins. Búast má því við að þjónustan verði í stöðugri mótun á komandi misserum, í samvinnu við bæði félagsráðgjafa og námsráðgjafa eftir þörfum. Skólahjúkrunarfræðingur er hluti af stoðteymi skólans og tekur þátt í fræðslu sem tengist heilbrigðismálum og forvörnum, veitir ráðgjöf og fræðslu til starfsfólks skólans og eftir þörfum sinnir eftirfylgni nemenda sem eiga við vanlíðan, veikindi eða langvinnan heilsufarsvanda að stríða.

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

  • Meiðsli og sjúkdóma
  • Kynheilbrigði
  • Verki og vanlíðan
  • Mataræði og hreyfingu
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
  • Reykingar/nikótínneyslu
  • Þjónustu heilsugæslunnar

Tímar eru bókaðir gegnum rafræna bókunarsíðu (eins og hjá námsráðgjafa og sálfræðingi).

Hægt er að senda Bjarneyju hjúkrunarfræðingi tölvupóst á hjukrun@ml.is.

Nemendur eru hvattir til að hafa samband ef þau hafa einhverjar spurningar, athugasemdir eða áhyggjur.

 

Tölvuþjónusta

Tölvuþjónusta ML er opin einn daga í viku en neyðarfyrirspurnum er sinnt alla daga.

Menntaskólinn að Laugarvatni er með samning við Microsoft og fær þess vegna aðgang að Office 365 skýi Microsoft.

Þetta þýðir að nemendur og kennarar hafa ókeypis aðgang að eftirfarandi:

    • nýjasta Office pakkanum (Office 365)
    • tölvupósti með @ml.is netfangi
    • Onedrive sem er gagnageymsla í skýi 1 T af stærð
    • Onenote til að glósa
    • Teams til hópavinnu og allrar samvinnu

Skjávarpar eru í öllum skólastofum og öflugt þráðlaust net um öll húsakynni.  Almennar tölvur til notkunnar fyrir nemendur eru á bókasafni með aðgengi að prentara.

Í ML er Moodle notað sem námskerfi og Inna sér um að halda utan um nemendaskráningu.

Menntaskýið er sameinað tölvukerfi allra framhalds- og háskóla í landinu. ML er aðili að Menntaskýinu.

Lyklakippan er gátt Menntaskýsins, þar sem hægt er að skipta um lykilorð eða endursett tveggja þátta auðkenningu (MFA).

Tölvuþjónusta fyrir nemendur er opin:

Miðvikudaga: 11:00 - 15:00 skrifstofa ML

Viðvera verkefnastjóra UT er:

Miðvikudaga: 9:00 - 15:00 skrifstofa ML

Fimmtudaga: 9:00 - 15:00 skrifstofa ML eða vinna heima

Sími 4808805

Teams skilaboð

 

Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?