Skólabragur og félagslíf

Skólabragur

Skólabragurinn í Menntaskólanum að Laugarvatni er einstakur. Bekkjakerfið, smæð skólans, staðsetningin og heimavistin skapa umgjörð um okkar góða, nána samfélag. Andrúmsloftið í skólanum er afslappað og félagslífið er afar blómlegt.  

Nemendafélag Mímir vinnur að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda. Nemendur geta boðið sig fram til að sitja í stjórn Mímis og sinna þar fjölbreyttum embættum félagsins. Á vegum Mímis eru haldnir margir viðburðir, s.s. kraftakeppnin ML Skessan og ML Tröllið, tónlistarviðburðurinn Diddinn, bíókvöld, Útvarp Benjamín, söngvakeppnin Blítt og létt, íþróttamót, menningarferðir og böll. Árlega er sett upp leikrit og haldin glæsileg árshátíð. Á vorin eru þemadagar, sem kallast Dagamunur, með stuttum námskeiðum og skemmtidagskrá. Dagamunur endar á Dollanum, en hann felst í þrautakeppni nemenda og starfsfólks. Félagsaðstaða nemenda er í N-stofu á fyrstu hæð skólans, með aðstöðu til að spila billjard og fótboltaspil, halda samkomur, hangsa og spila á píanó, svo eitthvað sé nefnt.

Í stjórn nemendafélagsins starfa jafnréttis- og skólaráðsfulltrúar. Lögð er áhersla á að félagslífið einkennist af virðingu og jafnrétti. Hinseginfélagið Yggdrasill var stofnað 2021. Félagið stuðlar að auknum sýnileika og fræðslu um hinsegin málefni í skólanum og stuðningi við hinsegin nemendur skólans. 

Í íþróttahúsinu á Laugarvatni eru fastir “ML-tímar” sem íþróttaformenn Mímis skipuleggja. Haldin eru bekkjarmót og hefð fyrir bekkjarbúningum á öðru ári. Hver bekkur heldur eitt bekkjarkvöld á vetri, með hátíðarkvöldverði að hætti kokksins og skemmtun sem bekkjarfélagarnir skipuleggja sjálfir. Söngsalur er einu sinni á vetri en þá fellur niður kennslustund og nemendur hittast í samsöng í holinu. Kór menntaskólans er stærsti framhaldsskólakór á landinu og í kring um hann er mikið líf og fjör. Haldnir eru viðburðir í tengslum við fjáröflun kórsins og reglulega heldur þriðji bekkur kaffihúsakvöld til að safna fyrir útskriftarferðinni. Í útivistarvali er farið í fjölbreyttar ferðir, sem er mikil upplifun. Síðast en ekki síst býður vistarlífið upp á samveru og gleði. Heimavistinni er stýrt af kærleiksríkri festu og utanumhald er afar gott.  

Með þátttöku í öflugu félagslífi öðlast nemendur mikilvæga og þroskandi reynslu. ML-ingar halda hópinn og á hverju vori, á útskriftardaginn, hittast útskriftarárgangar fyrri ára og áratuga og júbílera” með hátíðarkvöldverði og dansleik. Margir eignast vini fyrir lífstíð í ML. 

 

Félagslíf í ML

Mímir er nemendafélag Menntaskólans að Laugarvatni. Tilgangur félagsins og markmið er að gæta hagsmuna nemenda og auðga félagslíf þeirra yfir skólatímann með hverskyns félagsstarfsemi. Félagið var stofnað 25. október árið 1952.

Stjórn Mímis samanstendur af 10 embættum, í sumum embættum eru tveir, sem gera 14 stjórnarmeðlimi samtals. Mímir heldur utan um margs konar tómstundarklúbba og sér um alls konar viðburði innan sem utan skólans.

Hefðir og tákn

Kaffitímar

Um er að ræða að nemendur bjóði kennara í kaffi í einum tíma á hvorri önn. Kennara er frjálst að samþykkja slíkt eða hafna. Reyndin hefur orðið sú að þessir tímar eru notaðir til að spjalla um heima og geima, en æskilegast er þó að þeir séu notaðir sem þáttur í kennslu.

Húsþing

Skólameistari kallar til húsþings þegar hann þarf að koma áríðandi erindum til allra nemenda. Þá er bjöllunni hringt tvisvar. Húsþing eru mismunandi að lengd, frá 5 mínútum til 20.

Söngsalur

Einu sinni á hvorri önn hefja nemendur söng fyrir framan skrifstofu skólameistara og biðja með þeim hætti um leyfi til að nota næstu kennslustund til söngs. Sé söngurinn með þeim hætti að skólameistari telur hann boðlegan, veitir hann leyfi sitt.

Göngufrí

Nemendur bjóða kennara í göngu í einum tíma á hvorri önn. Kennara er frjálst að samþykkja slíkt eða hafna.

Dagamunur og Dolli

Í vikunni fyrir árshátíð hefur skapast sú venja á miðvikudegi og fimmtudegi, að í stað hefðbundins skólahalds gera nemendur sér dagamun með því að sækja ýmis konar námskeið, fundi eða aðrar samkomur. Á föstudegi á Dolli sér stað, en hann felst í ýmisskonar þrautakeppni nemenda og starfsfólks. Reiknað er með að kennarar leggi fram krafta sína með því að standa að einhverjum þætti í starfinu á þessum dögum.

Merki ML

Merki skólans

Sveinn Þórðarson skólameistari ákvað að Hvítbláinn skyldi vera í merki skólans. Einkunnarorðin þrjú sem eru í merkinu: manngildiþekking og atorka, eru þýðing Baldvins Einarssonar á hugtakinu „humanismus“ eða húmanismi.

Merki ML

Fáni ML

Við útför Einars Benediktssonar var kista hans sveipuð bláhvíta fánanum sem hann hafði barist fyrir að yrði þjóðfáni Íslendinga. Már, sonur Einars, fól Jónasi Jónssyni frá Hriflu að varðveita fánann og ráðstafa honum á viðeigandi hátt. Við stofnun Menntaskólans að Laugarvatni, 12. apríl 1953, færði Jónas honum þennan fána að gjöf og verður hann að teljast ein merkasta eign skólans. Mun Jónas hafa haft í huga að með gjöfinni mætti stuðla að áhuga æskunnar á verkum þjóðskáldsins.

(Heimild: Menntaskólinn að Laugarvatni – Forsaga, stofnun og saga til aldamóta. Sögusteinn 2001).

Skólasöngurinn

Sveinn Þórðarson, skólameistari, ákvað að ljóðið „Til fánans“ skyldi vera söngur skólans. Um leið mótaði hann þá hefð, að á fæðingardegi Einars Benediktssonar, 31. október, skyldi skáldskapur hans kynntur fyrir nemendum skólans.

Skólasöngurinn er sunginn við lag Björgvins Guðmundssonar. Það lag hefur verið notað síðan í skólameistaratíð Jóhanns S. Hannessonar, en áður var notað lag Sigfúsar Einarssonar.

Til fánans

Rís þú unga Íslands merki,
upp með þúsund radda brag.
Tengdu’ í oss að einu verki
anda, kraft og hjartarlag.
Rís þú, Íslands stóri, sterki
stofn, með nýjan frægðardag.

Skín þú, fáni, eynni yfir
eins og mjöll í fjallahlíð.
Fangamarkið fast þú skrifir
fólks í hjartað ár og síð.
Munist, hvar sem landinn lifir,
litir þínir alla tíð.

Einar Benediktsson

Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?