Lykilupplýsingar fyrir nemendur

Upphaf skólagöngu í ML

Á vorin opnast fyrir umsóknir í ML í gegnum vef Menntamálastofnunar. Þar er einnig hægt að sækja um heimavist við skólann, eða senda póst á heimavist@ml.is.
Nánari upplýsingar um skólann, námið og fyrirkomulag náms má finna hér á heimasíðunni.
Allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir nýnema eru hér að neðan. Einnig má alltaf hafa samband við skrifstofu skólans í leit að upplýsingum.

Upplýsingatækni í upphafi skólagöngu

Hér má sjá það helsta sem ber að hafa í huga í sambandi við upplýsingatækni í upphafi skólagöngu í ML.

Upphaf annar

Það eru nokkrir hlutir sem gott er að fara yfir í upphafi hverrar annar, nokkrir þeirra eru nefndir hér fyrir neðan.

Tölvu og upplýsingatækni í ML

Tölvuþjónusta ML er opin þrjá daga í viku, en neyðarfyrirspurnum er sinnt alla daga.

Menntaskólinn að Laugarvatni er með samning við Microsoft og fær þess vegna aðgang að Office 365 skýi Microsoft.

Í ML er Moodle notað sem námsumsjónarkerfi og Inna sér um að halda utan um nemendaskráningu og einkunnir.

Tölvuþjónustan er opin: þriðjudaga – fimmtudaga frá 9:00 til 15:00

Nánari upplýsingar á: UT síðu ML

Til að hlaða niður AutoDesk forritum þarf að geraneftirfarandi:Fara á https://www.autodesk.com/education/free-software/featurednog velja það forrit sem á að hlaða niður. nÍ þessu tilfelli er verið að hlaða niður AutoCad.

  • Velja Create Account og fylla út land (Iceland), Educational role (student) og fæðingardag
  • Því næst þarf að fylla út nafn og @ml.is netfang og búa til gott lykilorð.
  • Smella á Create Account

Þá þarf að fara inná tölvupóstinn @ml.is og smella á staðfestingarslóðina.

  • Þá þarf að velja skóla (Laugarvatn Gymnasium, Menntaskólinn að Laugarvatni)
  • Einnig þarf að velja hvenær þið hófuð nám í skólanum og hvenær þið útskrifist

Þá ætti að vera hægt að hlaða niður forritinu eða fara aftur á upphafssíðuna og fara í Sign inAthugið að velja þarf stýrikerfi tölvu og að flestar nýja windows tölvur eru að keyra 64bit stýrikerfi.

Þið fáið þá Serial number og Product key í tölvupósti en það er einnig að finna á síðunni þar sem þið halið forritinu niður.

Til að virkja forritið eftir að það hefur verið sett upp þarf að setja inn Serial number. Leiðbeiningar þess efnis eru að finna hér
https://knowledge.autodesk.com/customer-service/download-install/activate/online-activation-registration

Merkimiði: AutoDesk
Menntaskólinn að Laugarvatni

Hafðu samband við ML

Menntaskólinn að Laugarvatni

Skólatúni 1
840 Laugarvatn

Upplýsingar

Netfang: ml@ml.is
Sími: (354) 480 8800
Kennitala: 460269-2299

Hvar er
Menntaskólinn að Laugarvatni?