Gljufrast listasafn 19Þriðjudaginn fyrir viku, 18. apríl, fór annar bekkur í menningarferð. Leiðin lá fyrst á Gljúfrastein, safn Halldórs Laxness, og því næst á Listasafn Reykjavíkur. Ferðin er hluti af íslenskuáfanga þar sem nemendur fræðast um íslenska bókmennta- og listasögu 20. aldarinnar.

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness frá 1945 og skrifaði hann þar margar af sínum vinsælustu bókum og höfðu jafnt nemendurnir sem kennarinn gaman af sýningunni. Það var tekið mjög vel á móti okkur á Gljúfrasteini og er við hæfi að benda á vandaða heimasíðu Gljúfrasteins.

Eftir stutt stopp við grafreit skáldsins, en Halldór og Auður kona hans eru jarðsett á Mosfelli í Mosfellsdal, héldum við á Café Atlanta og snæddum þar hádegisverð. Þá lá leiðin í Hafnarhús Listasafns Reykjavíkur. Þar er lögð áhersla á framsækna og tilraunakennda list og við fengum flotta leiðsögn í gegnum stóra sali safnsins. Viðtökur nemenda á verkunum voru misjafnar eins og þau voru mörg en flestir fundu þó eitthvað við sitt hæfi. Erró sýningin og myndbandsverk Ilmar Stefánsdóttur stóðu þó upp úr að flestra mati!

Allt í allt heppnaðist ferðin afar vel og ML-ingar komu fullir af andagift heim í skólann á ný. Ég þakka öðrum bekk og Pálma bílstjóra fyrir samveruna.

Aðalbjörg Bragadóttir íslenskukennari

Myndir úr ferðinni