gettu_betur_20091Í fyrstu umferð árlegrar spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, dróst ML á móti Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.  Í keppnisliði okkar eru þau Bjarni Sævarsson, Hrafnkell Sigurðarson og Þjóðbjörg Eiríksdóttir.  Leikar fóru þannig, að lið ML bar sigur úr býtum, hlaut 10 stig á móti 5 stigum Mosfellinga, og er þar með komið í aðra umferð keppninnar.

pms