Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 19. júní til og með 12. ágúst. Við opnum hana að nýju þriðjudaginn 12. ágúst kl. 9:00.
Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar. Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is
Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út seinni hluta júnímánaðar.
Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 18. ágúst. Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 19. ágúst. Skólasetning verður þann 20. ágúst kl. 8:30 og svo kennsla skv. stundatöflu.
Skipað verður niður á heimavistir í sumar og upplýst um herbergjaskipan í upphafi haustannar.
Kær sumarkveðja til allra núverandi og verðandi ML-inga.
Skólameistari