Þetta skólaár hefur verið einstaklega skemmtilegt og eftirminnilegt í körfuboltanum hjá okkur. Sérstaklega stóð upp úr að í fyrsta sinn var boðið upp á körfuboltaáfanga fyrir stelpur, undir stjórn Nicolas Dierynck. Stelpurnar lærðu grunnatriði leiksins, bættu færni sína og síðast en ekki síst skemmtu sér vel. Þetta hafði jákvæð áhrif á bæði stelpna- og strákahópana og styrkti körfuboltasamfélagið í skólanum.

Einn af hápunktum ársins var þátttaka drengjaliðsins í VIS-bikarnum (11. flokkur). Liðið keppti gegn Fjölni í Reykjavík, sem er eitt sterkasta lið landsins í þessum aldursflokki og skipað nokkrum landsliðsmönnum. Leikurinn var spennandi og jafn. Okkar lið leiddi í hálfleik og baráttan stóð alveg fram á síðustu sekúndur. Þrátt fyrir naumt tap, 73–72, fékk liðið mikið lófatak frá áhorfendum og gekk af velli með reisn og ógleymanlegar minningar.

Körfuboltaárið snerist ekki aðeins um leiki í íþróttahúsinu í Laugavatni. Nemendur fóru einnig í skemmtilegar ferðir utan skólans, meðal annars á leik í Bónusdeildinni. Þar heimsóttum við nágranna okkar í Þór Þorlákshöfn sem spiluðu gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Það var spennandi upplifun að fylgjast með körfubolta á hæsta stigi og stemningin var frábær.

Á heildina litið hefur þetta verið mjög gott ár fyrir körfuboltann í skólanum. Á næstu önn munum við halda áfram að bæta okkur á vellinum og einnig ræða mikilvægi heilbrigðs og jákvæðs félagslífs. Við ætlum einnig að halda áfram með verkefni utan vallar og heimsækja önnur lið víðs vegar um landið.

Mkilvægi heilbrigðs og jákvæðs félagslífs. Við ætlum einnig að halda áfram með verkefni utan vallar og heimsækja önnur lið víðs vegar um landið.

Allir sem hafa áhuga á körfubolta, eða vilja prófa í fyrsta sinn, eru hjartanlega velkomnir að taka þátt á næsta ári. Skemmtun er tryggð.

Greinahöfundur Baldur Már Jónsson