Undirbúningur skólaársins 2026-2027 er nú í fullum gangi og starfsfólk skólans komið til starfa.
Tekið verður á móti nýnemum í 1F og 1N mánudaginn 17. ágúst. Lyklaafhending verður frá kl. 10:00. Nýnemum og forráðamönnum þeirra verður boðið upp á léttan hádegismat frá kl. 12:00 - 12:45 og í kjölfarið verður fundur með nýnemunum og forráðamönnum þeirra kl. 13:00. Fundur með stjórnendum skólans, umsjónarkennurum, námsráðgjafa og húsbónda á heimavist verður í matsal skólans en stjórn nemendafélagsins Mímis fundar svo með nemendum í félagsaðstöðu nemenda.
Það er nauðsynlegt að foreldrar eða forráðamenn fylgi börnum sínum þennan dag, í nýju umhverfi og ekki síður til að funda með stjórnendum skólans, umsjónarkennurum, námsráðgjafa og húsbónda á heimavist.
Eldri nemendur mæti á heimavist seinnipart þriðjudags 18. ágúst.
Skólasetning verður í matsal skólans miðvikudaginn 19. ágúst kl. 8:30 og mun kennsla hefjast í kjölfarið samkvæmt stundatöflu.
Jóna Katrín Hilmarsdóttir skólameistari

