Nemendur í 1. bekk í umhverfis- og vistfræði hafa kynnt sér ólík vistkerfi Laugarvatns við upphafi skólaárs. Kennslan hefur að miklu leyti farið fram utandyra og nemendur hafa gengið mikið, tekið myndir og komið fyrir skordýragildrum svo dæmi séu nefnd.

Við höfum verið afar heppin með veður og notið samvistar hvers annars. Nemendurnir eru afar duglegir og vinna vel saman í hópum. Við hlökkum við til að vinna áfram með þeim og fræða þau um mikilvægi þess að virða náttúruna og umhverfið í kringum okkur.

Jóna Björk og Margrét Elín

Kennarar áfangans