Bláskógabyggð og Menntaskólinn að Laugarvatni hafa gert með sér samstarfssamning um rekstur Bókasafns ML en safnið hefur um áraraðir þjónustað íbúa Bláskógabyggðar, grunnskóla og leikskóla á Laugarvatni til viðbótar við þjónustu við nemendur og starfsfólk Menntaskólans.

Vorið 2026 var staða forstöðumanns Bókasafns ML lögð niður í hagræðingarskyni. Bókakosturinn hefur staðið nemendum og starfsfólki skólans til boða eins og áður en ekki hefur verið hægt að þjónusta grunnskóla eða íbúa sveitarfélagsins. Sveitarfélagið mun frá og með 1. október koma að fjármögnun starfsmanns við safnið og því getur bókasafnið opnað dyr sínar að nýju fyrir nemendum leik- og grunnskóla og íbúum Laugarvatns. Til stendur að bókasafnið þjónusti íbúana og nemendur leik- og grunnskóla á tímabilinu 1. september til 31. maí ár hvert.

Verið hjartanlega velkomin á Bókasafn ML.