Kór Menntaskólans að LaugarvatniVið í Kór Menntaskólans að Laugarvatni verðum með notalega kvöldstund í Skálholtskirkju að kvöldi þriðjudagsins 26. nóvember klukkan 20:30.  Við bjóðum alla velkomna til að njóta fallegs söngs í aðdraganda aðventu, tónlistar, hugvekju og ýmissa skemmtilegra atriða í góðum félagsskap.  Aðgangur er ókeypis en í söngskrá verða upplýsingar um reikningsnúmer sem hægt er að leggja inn á og er vonast til að sem flestir sjái sér fært að styrkja okkur svo við getum haldið skemmtilegu kórastarfi áfram en m.a. er stefnt á að fara í kórferð utanlands.

Það eru 64 nemendur í kórnum og stjórnandi er Eyrún Jónasdóttir.  Vonumst til að sjá sem flesta.

Kórfélagar í Kór Menntaskólans að Laugarvatni