Á KjarvalsstöðumMiðvikudaginn fyrir viku, 12. nóvember, fóru tveir bekkir, 3F og 4N í menningarferð. Leiðin lá fyrst á Gljúfrastein, safn Halldórs Laxness og því næst á Kjarvalsstaði. Heimsóknirnar eru hluti af áfanganum ÍSL503, þar sem nemendur fræðast um íslenska bókmenntasögu 20. aldarinnar og lesa eitt helsta stórvirki Halldórs, Sjálfstætt fólk.

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness frá 1945 og skrifaði hann þar margar af sínum vinsælustu bókum og höfðu jafnt nemendurnir sem kennarinn gaman af sýningunni. Það var tekið mjög vel á móti okkur á Gljúfrasteini og er við hæfi að benda á vandaða heimasíðu Gljúfrasteins.

Eftir stutt stopp við grafreit skáldsins, en Halldór er jarðsettur á Mosfelli í Mosfellsdal, héldum við á kaffihúsið í Álafosskvos og snæddum þar dýrindis hádegisverð. Þá lá leiðin á Kjarvalsstaði en í vetur er þar sýning á verkum eftir Jóhannes S. Kjarval og sænska listamanninn Andreas Eriksson. Við fengum flotta leiðsögn í gegnum stóra sali safnsins og voru viðtökur nemenda á verkunum misjafnar eins og þau voru mörg. Flestir fundu þó eitthvað við sitt hæfi, enda safnið fullt af málverkum, skúlptúrum, ljósmyndum og hönnun.

Allt í allt heppnaðist ferðin afar vel og ML-ingar komu fullir af andagift heim í skólann á ný. Ég þakka efri bekkingum og Pálma bílstjóra fyrir samveruna.

Aðalbjörg Bragadóttir íslenskukennari.

MYNDIR