jolasveinn 2Eftir því sem færi gefst, er unnið við að skanna, vinna, merkja og flytja myndir úr skólalífinu á öllum tímum inn á vefinn. Þetta verkefni er í höndum þess sem þetta ritar. Slóðin á þennan vef er: http://nemel.ml.is/myndasafn/.

Það eru auðvitað forréttindi að fá að vinna að þessu verkefni, en nú eru komnar þarna inn um 1700 myndir og verkið í raun ekki langt komið enn.  Ég hef áður kallað eftir að gamlir ML-ingar, aðallega þeir sem eiga myndir frá 1975 til um 2000, sendi mér myndir frá  dýrðartíma sínum í skólanum. Ég kalla enn eftir myndefni frá þessum tíma.  

Þegar búið er að smella á hlekkinn hér fyrir ofan er hægt að leita á vefnum eftir árum (t.d. ML2002) og nöfnum.  Myndirnar eru grófflokkaðar þannig að t.d. eru allar myndir sem teknar hafa verið í kringum leiksýningar, í sérstökum flokki.

Þessa dagana er ég að byrja á fyrstu myndum í safninu sem eru rafrænar, en þær eru frá árinu 2001-2. Myndir hér til vinstri er einmitt frá þeim tíma og eflaust þekkja einhverjir fyrirsætuna.

ML-ingar á öllum tímum: sameinumst nú um að sjá til þess að ekkert skólaár verði útundan í þessu safni.

Páll M. Skúlason