Á fimmtudaginn var, þann 1. nóvember var árlegur kynningardagur Menntaskólans að Laugarvatni. Rétt um 200 gestir heimsóttu skólann þennan dag, nemendur 9. og 10. bekkja margra grunnskóla á Suðurlandi ásamt kennurum. Hefð er fyrir því að ML bjóði sunnlenskum nemendum á sérlegan kynningardag að hausti og hefur verið afar ánægjulegt hversu margir grunnskólar hafa þekkst boðið ár hvert.
Eftir kynningu nemenda ML og kennara þeirra á námsgreinum þeim sem í boði eru í skólanum, á námsbrautum og skipulagi, húsakynnum og aðstöðu allri, ríkum hefðum skólans, heimavistar- og félagslífi, starfsemi nemendafélagsins, á mötuneytinu og ekki síst á þjónustu þvottahússins var öllum boðið í síðdegisverð í mötuneyti skólans áður en fólk fjölmennti á næsta viðburð, söngkeppnina Blítt og létt.
Meðfylgjandi myndir tók Ívar Sæland ljósmyndari
VS