Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 22. júní til og með 12. ágúst. Við opnum hana að nýju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 9:00.
Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar. Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is
Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út um 24. júní. Annað bréf með nánari upplýsingum verður sent út í annarri viku ágústmánaðar.
Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00. Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 25. ágúst. Skólasetning verður þann 26. ágúst kl. 8:15.
Innritaðir voru 59 nýnemar þar af einn á annað ár. Um 85 nemendur flytjast á milli bekkja. Nemendafjöldi næsta vetrar verður því um 145.
Skipað verður niður á heimavistir í sumar.
Njótum íslenska sumarsins og sjáumst endurnærð í ágústmánuði.
Skólameistari