Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 18. júní til og með 10. ágúst.  Við opnum hana að nýju miðvikudaginn 11. ágúst kl. 9:00.

Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar.  Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is 

Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út seinni hluta júnímánaðar.  Annað bréf með nánari upplýsingum verður sent út í annarri viku ágústmánaðar.

Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 23. ágúst kl. 13:00.  Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 24. ágúst.  Skólasetning verður þann 25. ágúst kl. 8:15.

Skipað verður niður á heimavistir í sumar.

Njótum íslenska sumarsins og sjáumst endurnærð í ágústmánuði.

Skólameistari