img_0948Útskrift Menntaskólans að Laugarvatni verður laugardaginn 29. maí n.k. kl. 14 í Íþróttahúsinu.  Áætlað er að útskrifaðir verða 25 nýstúdentar, 11 af félagsfræðabraut og 14 af náttúrufræðabraut. 

Búist er við fjölmenni á útskrift, aðstandendum nýstúdenta, júbilöntum ásamt starfsmönnum skólans.  Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður og skemmtun Nemendasambands ML, NEMEL, og hafa rúmlega 200 júbilantar, útskrifaðir stúdentar frá skólanum fyrir 5, 10, …, 50 og 55 árum, boðað komu sína.  Reiknað er með að um 160 þeirra gisti á heimavistum skólans um nóttina og þiggi síðan samkvæmt hefð morgunverð daginn eftir hjá skólameistarahjónunum í Garði.

hph