Námsmati haustannar er nú lokið og nemendur farnir heim í jólaleyfi. Annríki hefur verið mikið þessa síðustu daga, en nú hefur ró færst yfir húsakynnin.

Skrifstofa skólans lokar fimmtudaginn 19. desember, – og opnar á nýju ári, mánudaginn 6. janúar 2020.  

Starfsfólk ML óskar nemendum öllum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar og friðar á jólum og áramótum. Við þökkum samskipti á árinu sem er að líða og hlökkum til samstarfs á nýju ári.