Jon_HjaltiJón Hjalti Eiríksson, nemandi í 4. N er kominn í úrslit í eðlisfræðikeppni og á möguleika á að komast á Ólympíuleikana í eðlisfræði. Allir nemendur sem komust í úrslitakeppnina fá bókaverðlaun fyrir góðan árangur í forkeppninni og fimm efstu í úrslitakeppninni fá peningaverðlaun. Stefnt er að því að fara með fimm efstu keppendurna úr úrslitakeppninni til Bangkok þar sem Ólympíuleikarnir í eðlisfræði fara fram 10. – 18. júlí. Þetta er því frábær árangur hjá Jóni Hjalta sem mun taka þátt í úrslitakeppninni sem er tveggja daga keppni, verkleg og fræðileg. Óskar skólinn Jóni Hjalta hjartanlega til hamingju með árangurinn og það verður spennandi að sjá hvernig honum mun ganga í úrslitunum.

Þeir nemendur sem boðið var til úrslitakeppninnar eru eftirfarandi í röð miðað við árangur í forkeppninni:

Arnór Hákonarson  MR

Atli Þór Sveinbjarnarson  MR

Árni Indriðason  MR

Jón Hjalti Eiríksson  ML

Bjarni Bragi Jónsson  VÍ

Áslaug Haraldsdóttir  VÍ

Konráð Þór Þorsteinsson  MR

Sigtryggur Hauksson  MH

Aðalsteinn Axelsson  MR

Björn Bjarnsteinsson  MR

Magnús Pálsson  MH

Matthías Páll Gissurarson  MR

Hallfríður Kristinsdóttir  MA

Ólafur Pálsson  MH