Menntaskólinn að Laugarvatni vinnur gott starf í umhverfismálum í samstarfi við Landvernd. Við höfum flotta umhverfisnefnd, sem í sitja áhugasamir nemendur og vinna að því að gera skólann umhverfisvænni. Annað hvert ár þurfa skólar að sækja um nýjan Grænfána og nú í haust var komið að því hjá okkur. Fyrr í haust kom Katrín Magnúsdóttir, fulltrúi frá Landvernd, og tók út starfið. Hún hélt jafnframt fyrirlestur um plast og leiðir til að minnka notkun á því. Þann 13. nóvember kom Katrín svo aftur færandi hendi með nýjan Grænfána og skjal sem við munum ramma inn og hengja upp. Umhverfisnefndin tók himinsæl við fánanum og flaggaði honum, en gamla fánann máttu þau eiga til minningar. Það kæmi mér ekki á óvart að hann prýddi nú einhvern vegginn á Fjarvistinni. Katrín minntist á það í ræðu við athöfnina, að hún væri mjög hrifin af kraftinum í umhverfisnefndinni og að þessir krakkar væru góð fyrirmynd fyrir aðra. Hún tók sem dæmi að hún fékk að skoða herbergi hjá einum í nefndinni en í því var fullkomið ruslaflokkunarkerfi.

Það státa ekki allir skólar af svona drífandi umhverfissinnum – eða kannski eru þeir faldir í fjöldanum. Ég þakka nefndinni kærlega fyrir tímabilið sem nú er liðið og hlakka til næsta tímabils með nýjum markmiðum.

Heiða Gehringer formaður umhverfisnefndar ML