IMG_3974Þér er boðið að taka þátt í örsagnakeppni!

Þátttakendum ber að skila sínu framlagi á enskri tungu í síðasta lagi þann 14. febrúar næstkomandi.  Sögunum skal skilað í lokuðu umslagi í hólf enskudeildar (merkt Jóna Katrín).  Bókaverðlaun eru í boði fyrir 1.-3. sæti og munu úrslit keppninar verða tilkynnt á árshátíð skólans.

Keppnisreglur:  Til þess að öðlast þáttökurétt verður sagan að vera að lágmarki ein blaðsíða, en að hámarki 6 blaðsíður.  Leturgerð skal vera Arial eða Times New Roman, leturstærð skal vera 12 punktar og línubil 1,5.  Sögunum á að skila útprentuðum í lokuðu umslagi.  Sagan sjálf skal merkt undir dulnefni og í umslagið með sögunni skal láta lítið umslag þar sem fram kemur fullt nafn höfundar (þetta er gert til þess að nafnleynd hvíli yfir sögunum á meðan lestri dómara stendur).  Athugið að gæði og skemmtanagildi sögunnar vega þyngra en málfræði og stafsetning, þó er sjálfsagt að láta tölvuna (og/eða fleiri góða) lesa yfir fyrir sig.