Þarna er verið að kynna sér krullu í Skautahöllinni

Á slaginu kl. 13.05 fimmtudaginn 16. janúar lagði hópur sem taldi 49 manns ásamt útivistarkennurunum Óla og Helgu Kristínu og Pálma bílstjóra og fjölskyldu. Ferðin norður gekk vel, stoppað á nokkrum stöðum til að taka búnað sem komið var með í veg fyrir hópinn.

Til Akureyrar komum við kl. 20:00 og fórum beina leið í hamborgarahlaðborð sem búið var að panta á Greifanum. Síðan var farið í KA heimilið þar sem hópurinn gisti alla ferðina. Þegar alllir voru búnir að finna sér pláss var slakað á eða farið í fótbolta en opið var í salinn og vakti það stormandi lukku. Um miðnættið var þó farið að koma ró á hópinn svo hægt væri að fara á fætur á skikkanlegum tíma.Til gamans má geta þess að þetta er sjötta árið í röð sem skíðin og skautarnir eru tekin til kostanna í höfuðstað Norðurlands.

 

Kl. 7:30 voru nemendur vaktir í morgunmat. Hópurinn var svo mættur í Skautahöllina kl. 09.00 í Krullu (curling) kynningu fyrsta klukkutímann. Að að henni lokinni var farið í  nokkrar léttar grunn- og undirbúningsæfingar á skautum og síðan keppt í íshokkí. Mikill hamagangur, fjör og læti og allir ánægðir með þetta. Virkilega góð aðstaða í Skautahöll Akureyrar  og vel tekið á móti okkur. Þaðan fórum við rakleiðis í mat í Menntaskólann á Akureyri. Í boði var kjúklingabringa, salat og royal búðingur með rjóma á eftir. Þessi heimsókn í Menntaskólan á Akureyri tók fljótt af og allir sáttir.

Eftir smá viðkomu í KA heimilinu fórum við áfram í Hlíðarfjall, þar sem byrjað var á að finna búnað á þá sem þurftu að leigja sér bretti, skíði eða annað sem þurfti með. Góður undirbúningur skilar sér venjulega, en lagt hafði verið töluverða vinnu við að útbúa lista með óskum allra og senda norður nokkrum dögum fyrir skíðaferðina. Gekk bara nokkuð vel að koma öllum á skíði.

Veður var frábært og færi gott. Logn, lágskýjað og nokkuð hlýtt. Fyrst fóru flestir nemendur, sérstaklega þeir sem voru byrjendur, í skíðakennslu hjá farastjórum og skíðaleiðbeinendum ML-hópsins. Það gekk mjög vel og voru allir nemendur duglegir og áhugasamir. Þegar leið á fóru nemendur meira að skíða frjálst.

Útbúin var nestisaðstaða í skálanum sem krakkarnir gátu gengið í eftir hentugleikum. Um kvöldmatarleytið sigum við heim á leið og þá beina leið í sund eftir að hafa skíðað mikið. Í kvöldmat hituðum við pylsur með öllu. Slökun var svo það sem eftir lifði kvölds.

Laugardagur rann upp. Frábært skíðaveður, nokkurra stiga frost, nánast logn og bjart. Gat ekki verið betra. Eftir ágætan morgunverð lá leiðin beint á skíði en nú voru komnir mun fleiri í brekkurnar en í gær. Allir gátu gengið beint að sínum búnaði sem hafði verið settur í rútuna okkar kvöldið áður þannig að lítil sem engin töf varð við það. Síðan fór dagurinn einfaldlega í brun, svig, brettastökk ofl. skemmtilegt sem hæfði hverjum og einum. Við fengum úthlutað rými á efri hæð skálans þar sem við vorum sér og gátum haft nestið standandi þar allan tímann svo hægt var að fá sér snarl þegar hver og einn vildi. Kl. 16.00 var svo lokað í lyfturnar og við héldum heim á leið. Flestir fóru í sund og heita pottinn en nokkrir kusu að hvíla lúin bein í KA heimilinu og horfa á Ísland vinna Makedóníu á EM í handbolta. Eftir sundið voru sóttar flatbökur og þeim gerð góð skil á gististaðnum og eftir það var brunað í bíó. Þó aðeins hafi dregist  að koma ró á hópinn þetta síðasta kvöld, þá var það nú allt í lagi – þar sem hægt var að sofa í rútunni á leiðinni heim.

Við fórum á fætur á sunnudag upp úr kl. 08.30 í morgunmat og tiltekt í framhaldi af því. Lögðum af stað heim á leið kl. 10.45 og um kl. 12:30 komum við á Blönduós. Þar var hádegismatur í Pottinum og pönnunni sem er virkilega fínn matsölustaður. Óhætt að mæla með honum enda voru krakkarnir ánægð með fisk og salatbar og súpu  í forrétt. þAð var síðan áð í Mosfellsbæ þar sem fólk fékk sér í svanginn. Komið var á Laugarvatn um kl. 19.15, sem var rúmum klst fyrr en í fyrra, nýi Lyngdalsheiðarvegurinn stytti leiðina svolitið. Allir ánægðir eftir sérlega vel heppnaða ferð.  

Ólafur Guðmundsson,  Helga Kristín Sæbjörnsdóttir og Pálmi Hilmarsson.

 

NOKKRAR MYNDIR