Undanfarna daga hefur starfsfólk unnið að undirbúningi nýs skólaárs og dagskrá næstu daga liggur fyrir.

Fyrsti kennarafundur komandi annar verður í fyrramálið og á mánudaginn kemur, 19. ágúst kl. 13:00 munu nýemar mæta í skólann ásamt foreldrum/forráðamönnum. Kl. 14:00 koma foreldrar/forráðamenn á fund í matsal með stjórnendum, námsráðgjafa, umsjónarkennurum, gjaldkera mötuneytis, skólaritara, húsfreyju og húsbónda á heimavist og vistarvörðum. Á meðan á fundi stendur mun stjórn nemendafélagsins fylgja nýnemum um skólahúsnæðið og nágrenni, og kynna starfsemi nemendafélagsins og félagslíf innan skólans.

Þriðjudagur 20. ágúst er nýnemadagurinn. Dagskrá dagsins er þannig að fyrir hádegi er nýnemum kynnt ýmislegt sem viðkemur starfi skólans. Eftir hádegi er síðan óvissuhópefli, ætlað til að nemendur kynnist innbyrðis. Síðdegis fara eldri nemendur svo að tínast á staðinn.

Formleg skólasetning verður miðvikudagsmorgun 21. ágúst og í framhaldi verður svokölluð hraðkennsla, þ.e. að hver kennslustund verður einungis 40 mínútur og þannig hittir hver kennari  á sinn hóp einu sinni strax fyrsta daginn og hver nemandi hittir sinn kennara í viðkomandi áfanga. Á  fimmtudagsmorgun hefst  kennsla samkvæmt stundaskrá.

Nú eru 136 nemendur skráðir í nám við skólann. Af þeim eru 56 nemendur á fyrsta ári, 41 á öðru ári og 39 þriðja árs nemendur.

vs