32883913853 1aec8a39f2 zEftirfarandi bókun skólanefndar var samþykkt á skólanefndarfundi s.l. föstudag, 21. apríl:
###
Bókun:
Öflugt íþrótta- og félagslíf hefur verið eitt af aðalsmerkjum Menntaskólans að Laugarvatni (ML) frá stofnun hans. Íþróttakennsla og íþróttaiðkun nemenda er honum og þeim afar mikilvæg. ML er Heilsueflandi framhaldsskóli og hefur lagt ríka áherslu á hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.
Skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni lýsir þungum áhyggjum yfir því að enn er það óleyst hver mun verða húsráðandi núverandi Íþróttahúss og sundlaugar Háskóla Íslands á Laugarvatni þar sem Íþróttafræðasetur HÍ hefur verið lagt niður. Menntaskólinn að Laugarvatni hefur hingað til leigt íþróttaaðstöðu, vegna kennslu og íþróttaiðkunar nemenda, af Háskóla Íslands en einnig hafa ýmsir viðburðir á vegum menntaskólans, sem tengjast félags- og íþróttalífi, farið fram í íþróttahúsinu. Þá hefur útskrift og skólaslit ML vor hvert farið fram í Íþróttahúsinu í áratugi.
Ef ML fær ekki að nýta aðstöðu þá sem um ræðir til þeirra þátta sem nefndir eru, verður grafið mjög undan framtíð skólans og samfélagsins.
ML getur ekki án íþróttahússins verið!
Skólanefnd ML hvetur ráðherra mennta- og menningarmála og ráðherra fjármála að finna viðhlítandi lausn til framtíðar hið allra fyrsta.
###

Hún var samþykkt samhljóða og jafnframt var samþykkt að fela skólameistara að senda bókunina öllum þingmönnum Suðurkjördæmis, fjölmiðlum, ráðherrum fjármála- og menntamála og sveitarstjórnum á Suðurlandi

hph