Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 18. júní til og með 8. ágúst.  Við opnum hana að nýju föstudaginn 9. ágúst kl. 9:00.

Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar.  Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is 

Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út um 20. júní.  Annað bréf með nánari upplýsingum verður sent út í annarri viku ágústmánaðar.

Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 19. ágúst kl. 13:00.  Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 20. ágúst.  Skólasetning verður þann 21. ágúst kl. 8:15.

Innritaðir voru 55 nýnemar.  Um 80 nemendur flytjast á milli bekkja.  Nemendafjöldi næsta vetrar verður því um 135.

Skipað verður niður á heimavistir í sumar.

Njótum íslenska sumarsins og sjáumst endurnærð í ágústmánuði.

 

Hph