Ljsmynd af merki sklans

Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 18. júní til og með 8. ágúst.  Við opnum hana að nýju fimmtudaginn 9. ágúst kl. 9:00.

Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar.  Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is 

Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út um 20. júní.  Annað bréf með nánari upplýsingum verður sent út í annarri viku ágústmánaðar.

Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 20. ágúst kl. 13:00.  Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 21. ágúst.  Skólasetning verður þann 22. ágúst kl. 8:15.

Innritaðir voru 43 nýnemar á fyrsta ár og að auki 1 viðbótarnemandi inn á annað ár.  101 nemandi flyst á milli bekkja.  Nemendafjöldi næsta vetrar verður því 145.

Skipað verður niður á heimavistir í sumar.

Njótum íslenska sumarsins og sjáumst endurnærð í ágústmánuði. 

Hph