Undirbúningur skólaársins 2024-2025 er nú í fullum gangi og starfsfólk skólans komið til starfa. Nú er spennandi vetur framundan og við erum farin að hlakka til að fá nemendur í hús og glæða byggingarnar lífi.  

Tekið verður á móti nýnemum í 1F og 1N mánudaginn 19. ágúst. Lyklaafhending verður á milli 10:00-11:30. Nýnemum og forráðamönnum þeirra verður boðið upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30 -12:45 og í kjölfarið verður fundur með nýnemunum og forráðamönnum þeirra kl. 13:00. Fundur með stjórnendum skólans, umsjónarkennurum, námsráðgjafa og húsbónda á heimavist verður í matsal skólans en stjórn nemendafélagsins Mímis fundar svo með nemendum í félagsaðstöðu nemenda.

Það er nauðsynlegt að foreldrar eða forráðamenn fylgi börnum sínum þennan dag, í nýju umhverfi og ekki síður til að funda með stjórnendum skólans, umsjónarkennurum, námsráðgjafa og húsbónda á heimavist.

Eldri nemendur mæti á heimavist seinnipart þriðjudags 20. ágúst

Skólasetning verður í matsal skólans miðvikudaginn 21. ágúst kl. 8:30 og mun kennsla hefjast í kjölfarið samkvæmt stundatöflu.

Jóna Katrín Hilmarsdóttir skólameistari